Um akv.is

Vefmiðillinn akv.is var stofnaður 1. apríl 2012 og er fréttamiðill tileinkaður Akureyri og nærsveitum. Vefurinn er í samstarfi við blaðið Akureyri vikublað og birtir efni úr blaðinu en einnig efni sem ritstjórn vefsins vinnur ásamt aðsendum greinum.

Aðsendar greinar eru mikilvægt efni á vefnum enda hafa greinaskrif almennings aukist til muna síðustu misseri. Það er ekki langt síðan nánast allir greinaskrifarar í blöðum almennt voru karlmenn á miðjum aldri sem langflestir skrifuðu á pólitískum forsendum. Nú er það allskonar fólk á öllum aldri sem skrifar um allskonar málefni. Þetta er gríðarlega mikilvægt því opinber umræða um samfélagsmál á ekki að vera á forsendum afmarkaðs hóps um afmörkuð málefni heldur á forsendum okkar allra um allskonar málefni.

Lesendur eru hvattir til að senda greinar og pistla ásamt mynd á netfangið sveinn@akv.is. Greinar verða birtar undir nafni og mynd nema séstakar ástæður séu til annars. Einnig verða birtar upplýsingar um viðburði sem senda má ásamt mynd á sama netfang.

Eigandi vefmiðilsins er Sóley Björk Stefánsdóttir (kt: 090773-3489).

Ritstjóri er Sveinn Arnarsson. Hafa má samband við ritstjóra í síma 662-1121eða með tölvupósti á sveinn@akv.is