Björgunarsveitarmenn frá Akureyri hafa verið síðustu klukkustundirnar á Öxnadalsheiðinni að aðstoða ökumenn sem fest höfðu bíla sína svo umferð stöðvaðist um heiðina.
Rúta með fjölda farþega fór út af um tvö leytið og vinna björgunarsveitarmenn að því að koma rútunni aftur upp á veg. Magnús Viðar Arnarson, formaður Björgunarsveitarinnar Súlna segir að heiðin verði lokuð báðum megin á meðan. Mokstursbíll frá vegagerðinni er á heiðinni en það skefur fljótt í austnorðaustanáttinni, segir Magnús.
Strætisvagn á leið frá Akureyri til Reykjavíkur festist þegar hann þurfti að nema staðar út af föstum fólksbílum. Samkvæmt upplýsingum frá Strætó bs er gert ráð fyrir að hann aki eftir mokstursbílnum niður af heiðinni. Vegna færðarinnar hefur ferð vagnsins sem á að fara frá Akureyrir til Reykjavíkur klukkan 15:40 verið felld niður en gert ráð fyrir að vagninn sem fastur er á heiðinni taki við af þeim vagni í tímaáætluninni.
Greint var frá þessu á Rúv



