Stórhríð er nú á Öxnadalsheiði og hún ófær samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.
Einnig er ófært og stórhríð á Þverárfjalli og á Siglufjarðarvegi en annars hálkublettir og skafrenningur á flestum leiðum.
Á Norðausturlandi er ófært og stórhríð á Sandvíkurheiði, Hólaheiði, Hálsum og Hófaskarði en ófært og óveður á Mývatnsöræfum. Þæfingur og skafrenningur er á Möðrudalsöræfum, Grenivíkurvegi og Vopnafjarðarheiði, annars er hálka, snjóþekja og skafrenningur mjög víða. Ófært er á Dettifossvegi.



