Höllu Björg Albertsdóttur sem býr í Giljahverfi á Akureyri brá heldur betur í brún í gær þegar hún kom heim og sá að farið hafði verið inn í íbúð hennar á meðan hún var ekki heima og búið að tæma nánast allt úr ísskápnum og brjóta, sulla og hella innihaldinu á gólfið. „Á gólfinu var allt í viðbjóði,“ segir Halla en hún segir frá málinu á Facebooksíðu sinni. „á gófinu var kokteilsósa,remolaði, kjúklingabringur sem var búið að opna og taka þær allar 4 úr og henda þeim á gólfið, það var búið að opna pylsupakka og dreifa þeim út um allt og stíga á þær, tómatsósa, 7 egg brotin á gólfinu, smjörlíki, heilt ostastykki, tómatar, epli, mjólk, skyr, og LÝSI, búið að tæma lýsisflösku yfir gólfið hjá mér!!“ Í stofunni var búið að sletta skyrdrykk og grjónagraut.
Halla hafði skilið íbúðina eftir ólæsta en hún hafði farið að heiman um kl. 18 og komið aftur um 20:30. Hún hafði samband við lögregluna sem kom og skoðaði verksummerki. Lögreglan staðfesti í samtali við blaðamann að þetta væri í annað skipti sem sambærilegt atvik hefði átt sér stað á Akureyri, í apríl sl. hefði lögreglan fengið tilkynningu um mjög svipaða aðkomu.
Á gólfinu sáust fótspor eftir barnastígvél sem benda til þess að ungt barn hafi verið að verki. Einnig fundust á eldhúsbekknum svartir fingravettlingar með loði í kvennmannsstærð.
Halla furðar sig á málinu og segir frá því á Facebooksíðu sinni og biður Akureyringa um að vera vakandi yfir því ef barn er í stígvélum og fötum með matarleyfum. Hún getur sér þess til að um fleiri en eitt barn hafi verið að ræða.
Hér má sjá myndir sem teknar voru í íbúðinni.




