Á morgun hefst röð fræðsluþinga um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn börnum sem haldin verða víða um land. Á meðal þeirra málefna sem fjallað er um er einkenni þolenda kynferðisbrota, skaðleg kynhegðun og klám, rannsókn kynferðisbrota og annarra brota gegn börnum, réttindafræðsla sem forvörn og hvernig fræðsluefni um kynlíf er fylgt eftir.
Þingin eru hugsuð fyrir stjórnendur, kennara og annað starfsfólk grunn- og framhaldsskóla en einnig eru forvarnarfulltrúar, náms- og starfsráðgjafar, þeir sem starfa við íþrótta-og æskulýðsmál, barnavernd, heilsugæslu og félagsþjónustu að ógleymdum sveitarstjórnum og löggæslu hvattir til að mæta.
Það er samstarfsverkefni þriggja ráðuneyta sem nefnist Vitundavakning sem stendur fyrir fræðsluþingunum en með verkefninu er lögð áhersla á að fræða þá sem vinna með börnum um eðli og afleiðingar kynferðislegs, andlegs og líkamlegs ofbeldis, svo allir séu í stakk búnir til að bregðast við, ef börn sýna þess merki að hafa orðið fyrir ofbeldi.
Hlutverk Vitundarvakningar er að kortleggja, samhæfa og stuðla að umfangsmiklu forvarnarstarfi í málaflokknum í samstarfi við viðkomandi aðila, huga að rannsóknum varðandi ofbeldi gegn börnum og stuðla að aukinni samfélagsvitund um málaflokkinn. Fræðsla og forvarnir beinast fyrst og fremst að börnum, fólki sem vinnur með börnum, réttarvörslukerfinu sem og almenningi.
Fyrsta fræðsluþingið fer fram á morgun 1. október í Fjölbrautaskóla Norðurlands á Sauðárkróki en miðvikudaginn 2. október fer fram þing í Verkmenntaskólanum á Akureyri þar sem Illugi Gunnarsson, menntamálaráðherra, mun flytja ávarp. Staðsetningar og tíma þinganna yfir allt landið má sjá hér. Skráning á þingin fer fram með tölvupósti á gestamottakan@gestamottakan.is
Dagskrá fræðsluþinganna er eftirfarandi:
12.30 Hádegissnarl.
13:00 Ávarp ráðherra.
13:10 Vitundarvakning. Kynning á verkefninu, vefur, fræðsluefni.
13:15 Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, handritshöfundur og verkefnastjóri Fáðu já. „Fáðu já og annað
fræðsluefni – og hvað svo?“.
13:30 Hjördís Þórðardóttir/ Bergsteinn Jónsson, verkefnastjóri. „Réttindafræðsla sem forvörn.“
13:45 Kaffi & te.
14:00 Ólöf Ásta Farestveit/Margrét Kristín Magnúsdóttir/Þóra Sigfríður Einarsdóttir/Þorbjörg Sveinsdóttir frá Barnahúsi. „Einkenni þolenda kynferðisbrots.“
14.15 Anna Kristín Newton/María Jónsdóttir/Ólafur Bragason/Sólveig Fríða /Þórarinn Viðar Hjaltason:
„Skaðleg kynhegðun barna og klám.“
14:30 Stefán Eiríksson, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu flytur erindið „Rannsókn kynferðisbrota og
annarra brota gegn börnum.“
14:45 Kaffi og veitingar.
15:20 Hópastarf sem fyrirlesarar stýra.
16:20 Stutt samantekt.
16:40 Bæjarstjóri/forseti bæjarstjórnar slítur þinginu.





