George Bush er fáviti!

Hlynur Hallsson myndlistarmaður

Tíu ár eru liðin síðan ungur akureyrskur listamaður ögraði heiminum með verkum sínum þannig að Bandaríkjamenn neyddust til að skoða hann og sjálfa sig í nýju ljósi. Togsreita skapaðist milli listar og ritskoðunar vegna djarfrar framsetningar á sýningu í Texas þar sem farið var háðulegum orðum um forseta Bandaríkjanna og reyndar „bananalýðveldið“ Ísland einnig. Gjörningurinn breyttist svo í paródíu þegar formerkjunum var snúið við á einu augabragði. Akureyri vikublað fékk Hlyn Hallsson myndlistarmann til að rifja upp söguna sem fram til þessa heldur enn nafni hans á lofti vestan hafs

Hlynur, það eru tíu ár síðan þú gerðir allt vitlaust með ákveðinni listrænni ögrun í smábæ í Texas, rifjaðu upp aðdraganda þess gjörnings fyrir okkur.

Mér bauðst að dvelja í vinnustofu í listasafni minimalistans Donalds Judd í Chinati Foundation í Marfa í Texas. Hluti af dvölinni var að setja upp sýningu í einu af sýningarhúsum safnsins og ég skellti upp einni samsýningu þar sem ég bauð fjölda félaga minna að taka þátt eins og ég geri gjarnan. Auk þess setti ég upp einkasýningu þar sem ég einfaldlega spreyjaði á veggi gallerísins nokkur slagorð á ensku og spænsku. Þetta voru textar þar sem snúið var við ummælum þáverandi forseta Bandaríkjanna George Bush um öxulveldi hins illa, semsagt “ÖXULVELDI HINS ILLA ERU ÍSREAL, BNA OG BRETLAND”. Einnig texta um að Ísland væri bananalýðveldi og að aðalhryðjuverkamaðurinn væri Ariel Sharon, en ekki Osama Bin Laden. Og svo það sem fór mest fyrir brjóstið á einhverjum að ég skrifaði bara “GEORGE W. BUSH ER FÁVITI” [George Bush is an idiot]. Ég gerði þetta auðvitað til að ögra og vekja upp umræðu en verkin mín snúast einmitt mjög oft um samræðu og samskipti. Ég hélt að mér hefði mistekist fullkomlega því á opnuninni voru allir sallarólegir, hrósuðu mér fyrir verkið og sögðu að þetta væri einmitt það sem Bandaríkjamenn þyrftu að heyra. Ég hafði búist við því að einhverjir yrðu ósáttir myndu hjóla í mig en það gerðist ekki á opnuninni.

Myrkrið getur verið frábært, segir Hlynur Hallsson en aðhyllist þó ljósið fremur. Sviðsljósið beindist að honum fyrir tíu árum þegar hann ögraði gervallri heimsbyggðinni með djörfum spreyverkum.

En sýningin varð svo að fréttamáli – hvernig rúllaði sá bolti af stað – er ekki rétt munað að New York Times hafi fjallað um málið?

Jú, strax daginn eftir tók ég eftir því að sýningin hafði vakið meiri athygli en ég hafði átt von á. Það var hægt að lesa textana frá götunni því það voru stórir gluggar á galleríinu og fyrst kom blaðamaður frá bæjarblaðinu og tók viðtal við mig. Blaðið var fullt af lesendabréfum frá fólki sem var gróflega misboðið. Bæjarstjórinn var líka kominn í málið því síminn stoppaði ekki hjá honum og eitt kvöldið nokkrum dögum eftir opnunina kemur safnstjórinn til mín eftir að hafa ekið í 10 tíma í gegnum eyðimörkina frá Houston og segist þurfa að loka sýningunni, hylja gluggana. Hún hafði verið í fríi en það varð ekkert frí því síminn hennar var rauðglóandi og einhverjir styrktaraðilar safnsins höfðu hótað því að hætta stuðningi við það og hún var ekki kát. Ég hefði getað pakkað saman daginn eftir og farið heim ef ég hefði ekki heimilað henni að líma fyrir gluggana enda hefði hún gert það hvort sem var.

Daginn eftir kom ég hinsvegar með tillögu að breyta sýningunni „aðeins“ og að við myndum hafa aðra opnun, þetta yrði annar hluti sýningarinnar. Henni leist vel á það og ég málaði yfir bláa textann og skrifaði með rauðum texta það sem sem Bush hafði sagt og það sem fólk vildi lesa: “ÖXULVELDI HINS ILLA ERU N-KÓREA, ÍRAK OG ÍRAN” og “GEORGE W. BUSH ER GÓÐUR LEIÐTOGI”. Það var önnur opnun sem var aðeins fjörlegri með umræðum sem snerust um viðhorf Evrópubúa til Bandaríkjanna, um ritskoðun og um stöðu listasafns í smábæ. Það var svo ekki fyrr en ég var á leiðinni heim að blaðamaður frá New York Times hringdi í mig og birti ljómandi grein um sýninguna og viðbrögðin og greinin kom reyndar einnig í International Herald Tribune.

Skipti það lykilmálið að gera þetta í Texas, í heimaríki Bush?

Já, það skipti miklu máli því mér var það augljóst að ég færi ekki til Texas með tilbúna sýningu án þess að fjalla um þá staðreynd að Bush ætti búgarð þarna í nágrenninu og að hann væri að undirbúa innrásir í hin og þessi lönd. Ef ég hefði gert þessa sýningu í New York eða Los Angeles hefði hún örugglega ekki vakið jafn sterk viðbrögð. Það sem skipti einnig miklu máli var að þetta var einu ári eftir árásirnar á tvíburaturnana og Pentagon og að sumra mati mátti ekki gagnrýna Bandaríkin á neinn hátt, þá var maður stimplaður óvinur.

Þurfti ekki slatta af hugrekki, jafnvel fífldirfsku til að framkvæma þennan gjörning – maður skyldi ætla að þetta væri ekki ósvipað og að skeina sig á sovéska fánanum fyrir framan Stalín á hans ógnarárum?

Nei, fyrir mér var þetta eðlilegasti hlutur og mér finnst það vera hlutverk listarinnar að skoða hlutina frá öllum hliðum, spyrja spurninga og gagnrýna. Ég var ekki bara að gera þetta bara til að ögra heldur einnig til að vekja athygli á málum, fá fólk til að átta sig á því að það hugsa ekki allir eins.

Eins og sjá má á þessari mynd af opnun Hlyns í Texas fyrir 10 árum blöstu skilaboðin við inn um stóra glugga og ollu uppnámi.

Þú fékkst að vita að þú gætir ekki lengur gengið um götur í Texas með unga dóttur þína á þessum tíma, var öryggi þínu ógnað?

Ég tel nú ekki að öryggi mínu hafi virkilega verið ógnað, en auðvitað brá mér við að heyra þessi ummæli. Ég held líka að ég hafi gert flestum grein fyrir því að ég væri ekki kominn til að predika og alls ekki sem einhver andstæðingur þó að ég væri ekki beint hrifinn af Bush.

Hvernig líður þér með minninguna um þetta nú 10 árum síðar?

Mjög vel, ég held að verkið hafi elst afar vel. Þessi tími í Texas var skemmtilegur og hafði mikil áhrif á mig, bæði fólkið og landið. Maður þurfi auðvitað smá tíma til að melta þetta en í minningunni er þetta allt rósrautt.

Ég hitti ameríska ferðamenn í sumar sem vissu það eitt um Ísland fyrir 10 árum að einhver brjálaður listamaður héðan hefði skrifað FUCK GEORGE BUSH eins og þá minnti að þú hefðir sett þetta fram – töluverð arfleifð?

Já það er skemmtilegt og mjög eðlilegt miðað við þá miklu umfjöllun sem sýningin fékk í Bandaríkjunum á sínum tíma.

Myndirðu stíga eins róttæk skref í listinni í dag og þarna ef þú ættir kost á því – eða var þetta ekkert róttækt í þínum huga? Erum við kannski teprur?

Á þessum tíma fannst mér þetta ekkert sérstaklega róttækt og maður veit aldrei alveg fyrirfram hver viðbrögðin verða. Ef sýningunni í Texas hefði ekki verið lokað og ég neyðst til að gera annað verk hefði það aldrei haft þessi áhrif. Ég er alltaf tilbúinn að taka næstu skref, maður veit hinsvegar ekki hvort þau ná til margra eða ekki, en það að breyta sýningunni til þess að halda samtalinu opnu skipti verulegu máli. Ég hef engan sérstakan áhuga að gera verk bara til að vekja athygli, það skipti mig meira máli að gera góð, heiðarleg verk, ef einhverjum líkar þau er það bara ánægjulegt. Já sennilega erum við líka teprur og þorum allt of oft ekki að takast beint á við hluti þegar það skiptir máli.

Hafa þessi spreyverk orðið að þínum aðalsmerkjum?

Nei, en ég hef haldið áfram að gera spreyverk ásamt því að gera ljósmyndaverk, vídeóverk, gjörninga, önnur textaverk eða hluti allt eftir því sem hentar hverri hugmynd. Spreyverkin hafa þróast. Upp á síðkastið hef ég unnið með texta á þremur tungumálum sem fjalla um ólíka hluti en eiga samt eitthvað sameiginlegt. Þetta er samt ekki meðvituð ákvörðun heldur þróun sem maður veit ekki endilega hvert stefnir en einmitt þannig er myndlistin oft. Myndlistin mín hefur ef til vill orðið beinskeyttari með tímanum en aðallega finnst mér spennandi að gera fjölbreytt verk þannig að það sé ekkert fyrirfram gefið hvað kemur næst.

Þú ræðst ekki alltaf á garðinn þar sem hann er lægstur, einu sinni sá ég þig á fundi þegar Kárahnjúkavirkjun var sem verkefni framtíðar kynnt á Akureyri, þar gekkstu til allra atvinnurekendanna og stóriðjusinnanna og útdeildir dreifimiðum gegn virkjuninni.

Fyrir mér var það eðlilegasti hlutur að koma skoðunum mínum og sem betur fer margra annarra á framfæri einmitt til þeirra sem voru með einhverja stóriðju á heilanum. Þetta snerist líka um að nota tækifærið til að koma ákveðnum málstað á framfæri og ef það fór í taugarnar á stóriðjuhöldunum þá var það bara enn betra.

Er mikilvægt að ná beinu sambandi við þá sem maður vill eitthvað segja? Er hefðin um of þannig að liðsmenn í ólíkum klíkum „confrontera“ ekki?

Já, öll skoðanaskipti yfir ákveðin landamæri á milli fólks eru mikilvæg. Ég hef ekki alltaf rétt fyrir mér og er alveg til í að skipta um skoðun ef einhver getur sannfært mig. Og það er einmitt mikilvægt að tala beint við þá sem eru manni ekki sammála. Það er auðvitað þægilegra að spjalla bara við þá sem eru manni sammála en hinu fylgir meiri ögrun og það finnst mér áhugaverðara hvort sem það er í myndlistinni eða daglegu lífi.

Hvað er annars á döfinni hjá þér í listinni?

Ég er að leggja lokahönd á tvö bókverk sem byggjast á verki sem ég sýndi í sumar í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrar. Þetta eru 150 teikningar án teikninga en bara með myndatexta sem vísa til staða á Akureyri og svo hinsvegar 150 teikningar sem sýningargestir teiknuðu af einhverjum fyrirmyndum frá Akureyri. Svo eru nokkrar sýningar á döfinni, ein í München ásamt félögum mínum úr Verksmiðjunni á Hjalteyri og svo tvær einkasýningar í Mjólkurbúðinni og Populus tremula og svo nokkrar sýningar í Þýskalandi, Frakklandi og í höfuðborginni. Það er alltaf nóg að gera ef maður vill það sjálfur því í myndlistinni skapar maður sér sjálfur starfsvettvang.

Þið Kristín Kjartansdóttir eigið fimm börn, hvernig hefur gengið að skapa list innan um alla hjörðina?

Það hefur gengið mjög vel. Börnin hafa náttúrulega bara verið fimm síðasta tvö og hálfa árið, þau eru fædd á 20 ára tímabili svo maður hefur lært á þetta smám saman. Ég hef einmitt verið að fjalla um daglegt “hefðbundið” líf í verkunum mínum og oftar en ekki tekur fjölskyldan eða einhverjir innan hennar þátt í sköpuninni. Þetta hefur gerst nokkuð eðlilega, byrjaði á því að Hugi tók þátt í gjörningum nokkurra ára gamall út í Þýskalandi og svo þegar Lóa Aðalheiður kom í heiminn var komin dæmigerð vísitölufjölskylda sem ég gerði nokkur verk út frá. Síðan hafa börnin verið myndefni eins og í myndröðinni MYNDIR-BILDER-PICTURES sem kom einmitt út á bók í fyrra. Við Kristín höfum einnig gert nokkur verk saman, hún sem félagsfræðingur og ég sem myndlistarmaður og það hefur verið spennandi.

Þið eruð nýflutt í Frúna í Hamborg – hvernig er að búa down town eins og George Bush myndi kalla það?

Það er dásamlegt að búa í miðbænum, það eina sem vantar er matvöruverslun annars hefur maður allt við hendina og stutt að fara hvert sem er. Kristín starfrækir Flóru á jarðhæðinni í þessu fyrsta húsi Kaupfélagsins og ég er með vinnustofu í kjallaranum og það eru reyndar sjö manns með vinnustofur í húsinu. Við búum svo á efri hæðinni og þetta er sennilega rólegi hluti miðbæjarins þó að við séum bara 50 metra frá horni Hafnarstrætis og Kaupvangsstrætis. Útsýnið yfir Pollinn er dásamlegt og góður andi í húsinu. Okkur líður því afar vel í miðbænum.

Ertu mikill jólamaður?

Nei, sennilega ekki en börnin laða fram í manni jólaandann. Ég er ekki mjög trúaður en lít á jólin sem hátíð ljóssins þar sem við fögnum því að daginn er aftur farið að lengja. En myrkrið getur líka verið frábært.

Texti Björn Þorláksson
Myndir Völundur Jónsson og Hlynur Hallsson

Áramótakveðja

Akureyri vikublað óskar lesendum öllum nær og fjær gleðilegrar hátíðar og farsæls komandi árs. Innilegar þakkir fyrir ánægjulega samfylgd á árinu sem er að líða Daníel Starrason ... Lesa »

Hætt við mokstur til Dalvíkur, líklega opnað til Grenivíkur seinnipartinn

Ekki lítur út fyrir að vegurinn til Dalvíkur verði opnaður í dag nema veðrið gangi niður fljótlega. Byrjað var að moka veginn í morgun en þar sem mjög fljótt fennti í slóðina var ... Lesa »

Brenna og flugeldasýning á Akureyri

Hin árlega áramótabrenna á Akureyri verður á sínum stað við Réttarhvamm í kvöld en þar verður einnig haldin flugeldasýning. Kveikt verður í brennunni kl. 20.30 en flugeldasýningin ... Lesa »

Mokstur gengur hægt en stefnt á að opna Víkurskarðið og til Dalvíkur

Verið er að moka Víkurskarðið en það gengur mjög hægt og ekki er vitað hvenær skarðið verður ökufært samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Enn er Siglufjarðarvegur lokaður ... Lesa »

Áramótabrennum frestað á Dalvík og Húsavík

Áramótabrennu Dalvíkinga hefur verið frestað til laugardagsins 5. janúar vegna veðurs og sama er um áramótabrennu Húsvíkinga en ekki eru upplýsingar um hvenær hún verður ... Lesa »

Jólasaga Hvanndalsbræðra

Hvanndalsbræður halda árlega jólatónleika á Græna hattinum þar sem slegið er á létta strengi. Tónleikarnir 26. desember sl. voru engin undantekning frá því eins og sjá má og heyra í ... Lesa »

Björgunarsveitirnar og hinn almenni björgunarsveitarmaður eru Þingeyingar ársins 2012

Lesendur þriggja miðla í Þingeyjarsýslum, Skarps.is, 640.is og 641.is hafa valið björgunarsveitirnar og hinn almenna björgunarsveitarmann Þingeyinga ársins 2012. Þetta varð ljóst ... Lesa »

snjorvegur

Allt ófært nema Öxnadalsheiði og beðið með mokstur

Búið er að moka Öxnadalsheiði og hún er vel fær en vegurinn yfir Vatnsskarð er þungfær. Ófært er frá Hofsósi út í Fljót en er Siglufjarðarvegur lokaður utan Fljóta vegna ... Lesa »

Páll Óskar mættur á Norðurlandið

„Jesss.. ég er kominn til Akureyrar,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson á Facebooksíðu sinni. „Flugvélin lenti um tvö leytið í dag. Það var ekki einu sinni ókyrrð í ... Lesa »

Bjart framundan í atvinnumálum í Þingeyjarsýslum

Aðalsteinn Baldursson, formaður Framsýnar stéttarfélags í Þingeyjarsýslum, telur árið 2013 verða Þingeyingum hliðhollt í atvinnumálum og áframhald verði á þeirri atvinnuuppbyggingu ... Lesa »

Vegir víða lokaðir á Norðurlandi

Björgunarsveitin Súlur á Akureyri var kölluð út rétt fyrir klukkan átta í morgun vegna bíla sem þörfnuðust aðstoðar á Öxnadalsheiði. Spáin um óveður á Vestur- og Norðurlandi ... Lesa »

Mynd: Linda Ólafsdóttir

Hættustigi almannavarna lýst yfir vegna óveðurs

Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið í samráði við lögreglustjórana á Selfossi, Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu, Akranesi, Borgarfirði og Dölum, Snæfellsnesi, Vestfjörðum, ... Lesa »

Erfiðara að vera tónlistarmaður á landsbyggðinni

Annað kvöld, 29. desember, gefst kostur á að heyra það nýjasta í Akureyrsku tónlistarlífi þegar hljómsveitirnar Sjálfsprottin Spévísi og PerversJón halda tónleika í Hlöðunni við ... Lesa »

Flugpresturinn

Sumir halda að prestsstarfið sé eitthvert óvenjulegasta starf í heimi. Sjálf hef ég stundum gælt við þá hugmynd eftir daga þar sem ég hef haft aðkomu að svo ólíkum atburðum og ... Lesa »

snjorvegur

Góð ráð til að koma í veg fyrir tjón í óveðrinu

Spáð er norðanstormi eða -ofsaveðri (20-32 m/s), fyrst á Vestfjörðum síðdegis en Vestanlands í nótt og á morgun og stórhríð á norðanverðu landinu í nótt og á ... Lesa »

Sjómenn krefja LÍÚ um kjarasamning strax

Aðalfundur Sjómannadeildar Framsýnar var haldinn í gærkvöldi. Fundurinn var að sögn málefnalegur og góður en miklar umræður urðu um kjaramál sjómanna. Mikið var rætt um framkomu ... Lesa »

Furðuleg fréttamennska!

Mér er það nánast óskiljanlegt hvernig birst gat frétt í síðasta tölublaði Akureyri vikublaðs sem bar fyrirsögnina „Hörð rimma um meinta spillingu L-listans.“ Reyndar er þetta ... Lesa »

Héraðsdómur Norðurlands Eystra

Dæmdur til að detta alls ekki í það

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt mann með aðsetur í Þingeyjarsýslu í 45 daga fangelsi, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún niður falla að liðnum þremur árum frá ... Lesa »

Áhyggjur vegna sjávarútvegarins

En bjartsýni vegna Vaðlaheiðarganga, segir forstöðumaður Vinnumálastofnunar. Fyrirtæki áhugasöm að skapa ný störf fyrir langtímaatvinnulausa, allir boðnir og búnir að ... Lesa »

Húsmæðraskólinn við Þórunnarstræti - Ný-klassískt sjónlistaverk á Akureyri

Varðveitum og sýnum Húsmæðraskólabyggingunni sem Guðjón Samúelsson arkitekt teiknaði af svo mikilli snilld að engu má hnika, þann sóma sem því ber. Tek undir með Svanhildi, ... Lesa »

Stefnir í frábæran dag í Hlíðarfjalli í dag

Það stefnir í frábæran dag í Hlíðarfjalli. Það er búið að snjóa 10-30 cm jafnfallið og það er -9 gráðu frost. „Lausamjöll út um allt og silkimjúkar troðnar brekkur,“ segir ... Lesa »

Ég er orðin leið á endalausum átökum og rifrildum

Segir oddviti Bjartrar framtíðar í NA-kjördæmi – get ekki lengur látið duga að kvarta yfir ástandinu heima í eldhúsinu, orðið tímabært að aðhafast - – flokkurinn frjálslyndur ... Lesa »

Björn Þorláksson

Þið ráðið stærðinni

Það er með auðmýkt og þakklæti sem Akureyri vikublað rennir yfir liðið ár. Fyrsta heila útgáfuári blaðsins er að ljúka. Blaðið hóf göngu sína 11. ágúst árið 2011 og markaði ... Lesa »

Aldeyjarfoss

Rammaáætlun – plagg fortíðar eða framtíðar?

Ímynd Íslands skiptir miklu máli þegar tekin verða næstu skref í virkjanamálum að sögn stjórnarliða. Minnihluti Alþingis telur rammaáætlun hafa tekið vondum pólitískum breytingum ... Lesa »

Jólahefðin heima

Jólin eru tími hefða. Við endurtökum sömu hlutina hver einustu jól og í grundvallaratriðum eru hefðirnar þær sömu milli fjölskyldna. Þetta er það sem gerir jólin svona ... Lesa »

Skoða meira