Í síðastliðinni viku bárust fjölmargar hamingjuóskir og gjafir í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrar. Einnig heiðruðu margir góðir gestir bæinn með nærveru sinni á hápunkti hátíðarhaldanna um liðna helgi og má þar nefna forseta Íslands, forsætisráðherra, þingmenn kjördæmisins, fulltrúa norrænu vinabæjanna og fulltrúa nágrannasveitarfélaga Akureyrar. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra færði Akureyringum hamingjuóskir frá ríkisstjórn Íslands og afhenti Akureyrarbæ 10 milljónir króna í tilefni tímamótanna.
Í gjafabréfi segir: “Fjármununum er ætlað að nýtast til styrktar menningu og listum í tilefni af afmælinu og/eða til stofnana bæjarins sem eiga stórafmæli á árinu. Er þar átt við 100 ára afmæli Lystigarðsins, 50 ára afmæli hjúkrunar- og dvalarheimilisins Hlíðar og 50 ára afmæli Minjasafnsins á Akureyri.”
Þá færðu aðildarsveitarfélög Eyþings Akureyri eina milljón króna til að setja á fót sérstakan ljósmyndavef Akureyrar. Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar veitti gjöfunum viðtöku og þakkaði þann hlýhug sem Akureyri er sýnd á þessum tímamótum.
Frétt af vef Akureyrarbæjar

