Skoraði eftir 40 sekúndur í sínum fyrsta landsleik

Skoraði eftir 40 sekúndur í sínum fyrsta landsleik

Thelma María Guðmundsdóttir á svellinu í dag. Mynd: Ásgrímur Ágústsson

Íshokkílandslið kvenna lék í dag fyrsta leik sinn í 2. deild heimsmeistaramótsins í Íshokkí. Landsliðið er að mestu leyti skipað leikmönnum frá Skautafélagi Akureyrar, þ.e. 13 leikmenn af 19 eru úr SA.

Viðureigning í dag var við lið Suður-Afríku og sigraði íslenska liðið með fimm mörkum gegn einu.

Thelma María Guðmundsdóttir, tæplega 17 ára stúlka úr SA, hóf þennan fyrsta landsleik sinn með því að skora mark eftir aðeins 40 sekúndna leik. „Ég hef ekki kannað hvernig þetta er miðað við fyrstu mörk leikmanna í öðrum íþróttagreinum, hvorki varðandi aldur né hve fljótt það gerðist, en leyfi mér bara samt að fullyrða að hér hlýtur að vera einhvers konar met,“ segir Haraldur Ingólfsson hjá SA.

Íslenska liðið virðist hafa komið til leiks af miklum krafti og ákveðið að keyra yfir andstæðingana strax í byrjun. Á fyrstu ellefu mínútunum skoraði íslenska liðið fjórum sinnum, áður en þær suður-afrísku komust á blað. Staðan 4-1 eftir fyrsta leikhluta. Ekkert var skorað í öðrum leikhluta og í þeim þriðja bætti íslenska liðið við einu marki. Lokatölur: Ísland - Suður-Afríka 5-1 (4-1, 0-0, 1-0).

Þetta er aldeilis flott byrjun hjá íslenska liðinu en nú fá stelpurnar eins dags frí og mæta svo króatíska liðinu á miðvikudag kl. 11.00 að íslenskum tíma.

Mörk/stoðsendingar
Sarah Smiley 1/2
Birna Baldursdóttir 1/1
Thelma María Guðmundsdóttir 1/0
Kristín Ingadóttir 1/0
Jónína Guðbjartsdóttir 1/0
Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir 0/1
Guðrún Blöndal 0/1
Arndís Eggerz Sigurðardóttir 0/1
Guðlaug Ingibjörg Þorsteinsdóttir varði 16 skot í íslenska markinu.
Íslenska liðið fékk á sig 8 refsimínútur en það suður-afríska 14 mínútur.

Það styttist í Big Jump keppnina - síðustu keppendur kynntir

Þá fer nú heldur betur að styttast í að Big Jump keppnin á AK Extreme hefjist en fyrstu stökkvarar fara af stað kl. 21. Bein útsending frá keppninni verður á sjónvarpsstöðinni N4 og ... Lesa »

Fínasta fermingarveisla

Við stöllurnar drifum okkur í fermingarveislu í gær. Hún var haldin í Hlíðarbæ á vegum leikhópsins Kviss búmm bang og Leikfélags Akureyrar. Um var að ræða sýninguna Lög unga ... Lesa »

Myndlistaropnanir í dag

Nóg er um að vera í myndlistarlífinu á Akureyri í dag og meðal viðburða má nefna opnun nýrra sýninga í Ketilhúsi, Deiglunni og Sal Myndlistarfélagsins. Í dag kl. 15 opnar Soffía ... Lesa »

Hjartastyrkjandi blús

Helgi Júlíus – Í blús Stjörnugjöf **** Hjartalæknirinn og lagahöfundurinn Helgi Júlíus sendi í fyrra frá sér reaggie plötuna "Kominn heim" hvar Valdimar nokkur Guðmundsson fór á ... Lesa »

Hjörleifur Hallgríms

Enn eitt skipulagsslysið

Það er um eitt ár siðan að samþykkt var skipulagstillaga í bæjarstjórn Akureyrar um byggingu húsa við Drottningarbraut, 2ja hæða með risi u.þ.b. 13 m á hæð og á horninu sunnan við ... Lesa »

Áhersla á Davíð á afmælisári

Leikfélag Akureyrar hefur kynnt dagskrá næsta vetrar fyrir félagsmönnum. Árið 1973 varð Leikfélag Akureyrar atvinnuleikhús og mun félagið halda upp á þessi tímamót með ýmsum hætti ... Lesa »

AK Extreme - fleiri keppendur og myndir frá kvöldinu

          Og svo að lokum myndaalbúm frá deginum og kvöldinu ... Lesa »

Fjölskyldan er mikilvæg

Fjölskyldan og foreldrar eru eitt af því mikilvægasta í lífi unglinga. Foreldrar þínir eru með þér frá fæðingardegi og ala þig upp þangað til þú ferð af heiman. Þeir bera ábyrgð ... Lesa »

Alþjóðlegt uppistand

„Ég er semsagt að koma norður til að halda uppistand í Hofi þann 6. apríl næstkomandi. Með í för verða tveir erlendir uppistandarar; Jonas Kinge Bergland og Craig Campbell frá Kanada, ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Last fær öryggisventillinn Ríkisútvarpið fyrir að rumska seint eftir að snarpir jarðskjálftar hófust á Norðurlandi aðfararnótt þriðjudag, segir karl sem sendi blaðinu bréf. Hann ... Lesa »

Thelma Líf rakar af sér hárið til styrktar krabbameinssjúkum börnum

Thelma Líf Gautadóttir ætlar að safna hálfri milljón til styrktar krabbameinssjúkum börnum með því að safna áheitum. Hún byrjaði að safna í vikunni og þegar upphæðinni verður ... Lesa »

Atvinnu- og nýsköpunarhelgin hefst í dag

Nú um helgina fer fram Atvinnu- og nýsköpunarhelgi á Akureyri. Viðburðurinn er vettvangur fyrir þá sem langar að koma viðskiptahugmynd í framkvæmd eða taka þátt í uppbyggingu hugmynda ... Lesa »

Varasöm efni enn í sælgæti

Mörg ár eru síðan Evrópusambandið skyldaði matvælaframleiðendur til að setja varúðarmerkingu á matvæli sem innihalda varasöm litarefni. Sú reglugerð var innleidd hér á landi fyrir ... Lesa »

Fleiri keppendur Ak Extreme kynntir til sögunnar

Áfram heldur kynning á keppendum Big Jump keppninnar sem haldinn verður á AK Extreme hátíðinni á laugardagskvöld.         ... Lesa »

Ef líf þitt héngi á bláþræði…

Kæri lesandi mér þykir fyrir því að viðurkenna það að ef ég myndi koma að þér í lífshættu myndi ég að öllum líkindum ekki geta bjargað þér. Jú ég hef vissulega fengið smá ... Lesa »

Hraust börn í Síðuskóla

Síðuskóli vann Akureyrarriðilinn í Skólahreysti fyrir páska en liðið æfir sig nú fyrir úrslitakeppnina sem fer fram 2. maí í Reykjavík og verður sýnt beint frá henni á RÚV. ... Lesa »

Hvað er skynsamleg hagstjórn?

Á morgun, föstudaginn 5. apríl kl. 12:15 stendur auðlindadeild Háskólans á Akureyri fyrir málstofu þar sem Eyjólfur Guðmundsson, hagfræðingur hjá CCP flytur erindi sem nefnist Skynsamleg ... Lesa »

Húseignir – Húsverndun

Mér hefur undanfarið verið mikið niðri fyrir, vegna fyrirhugaðra beytinga á Húsmæðraskólanum á Akureyri. Ég hef skrifað í blað, talað við fólk, haft samskipti við ... Lesa »

Rúmið fór næstum á loft!

Norðlendingum hefur sumum hverjum ekki orðið svefnsamt síðustu nætur en röð jarðskjálfta, flestir með upptök skammt frá Grímsey, hefur dunið yfir þar sem stærsti kippurinn mældist ... Lesa »

Björn Þorláksson

Fagra land – í rusli og drasli

Ég átti leið til Ameríku um daginn og sá þar víða auglýsingar um Ísland. Fyrir nokkrum árum lenti nafn Íslands á allra útlendinga vörum vegna tilviljunar. Það var þegar gosið í ... Lesa »

43% fækkun starfa úti á landi

„Ég er ekki að hætta, a.m.k. ekki alveg á næstunni. Við vorum nokkur sem lentum í því að starfshlutfallið var lækkað,“ segir Pétur Halldórsson, útvarpsmaðurinn góðkunni sem ... Lesa »

Kynning á keppendum AK Extreme

Snjóbretta- og tónlistarhátíðin AK Extreme hefst á fimmtudaginn en stærsti viðburður hátíðarinnar er svokölluð Big Jump keppni sem fram fer í Gilinu á laugardagskvöldið. Þar keppa ... Lesa »

Svellkaldar stelpur í sjóinn

Ottó Harðarson ljósmyndari var á röltinu þegar hann sá þessar svellköldu stelpur stökkva í sjóinn við menningarhúsið Hof. Ekki náði hann að spyrja þær hvort einhver sérstök ... Lesa »

Jethro Tull spilar í Hofi í júní

Breska sveitin Jethro Tull er væntanleg til Íslands í byrjun júní og efnir til þrennra tónleika í heimsókn sinni, þar sem sveitin flytur öll sín þekktustu lög. Tónleikarnir verða í ... Lesa »

Steingrímur J. og Álfheiður Ingadóttir á súpufundi

Í dag, miðvikudag, kl. 12 verða Steingrímur J. Sigfússon, Álfheiður Ingadóttir og Edward Huijbens á opnum stjórnmálafundi sem markar um leið formlega opnun kosningaskrifstofu VG á ... Lesa »

Skoða meira