Breska sveitin Jethro Tull er væntanleg til Íslands í byrjun júní og efnir til þrennra tónleika í heimsókn sinni, þar sem sveitin flytur öll sín þekktustu lög. Tónleikarnir verða í Hofi á Akureyri föstudaginn 7. júní, í Höllinni í Vestmannaeyjum laugardaginn 8. júní og í Eldborgarsal Hörpu í Reykjavík sunnudaginn 9. júní. Íslenskir tónlistarmenn koma jafnframt við sögu á tónleikum Tull í sumar.
Miðasala á tónleikana hefst í Hörpu og á midi.is þann miðvikudaginn 10. apríl nk. kl. 12 á hádegi.
Eins og mörgum er enn í fersku minni hélt Jethro Tull tvenna tónleika í Eldborgarsal Hörpu í júní í fyrra, þar sem færri komust að en vildu. Á tónleikunum í fyrra flutti sveitin í heild sinni meistaraverkið Thick As A Brick frá 1972 og svo framhaldsverkið Thick As a Brick 2, sem kom út fyrir um ári. Upprunalega verkið hafði þá ekki verið flutt í heild á sviði frá því það kom út. Tull hefur undanfarið ár haldið ótal tónleika með þessi tvö verk á dagskránni. Slík hefur eftirspurnin verið eftir þessum verkum, að sveitin er þegar bókuð langt fram á næsta ár.
Á tónleikunum þremur á Íslandi í júní mun Tull hvíla sig að mestu frá Thick As A Brick-verkunum og bjóða aðdáendum sveitarinnar þess í stað upp á dagskrá sem spannar 45 ára feril sveitarinnar eða „Best of Jethro Tull.“ Á meðal laga sem flutt verða eru Aqualung, Locomotive Breath, Bouree, Budapest, Living in the Past og fleiri perlur.
Þetta er í fimmta sinn sem Jethro Tull kemur til Íslands til tónleikahalds en í fyrsta skipti sem sveitin leikur á Akureyri og í Vestmannaeyjum. Auk tónleika í Reykjavík hefur sveitin haldið tónleika á Akranesi þegar hún kom fyrst hingað til lands til tónleikahalds árið 1992.

