Á fundi stjórnsýslunefndar Akureyrarbæjar í gær, miðvikudaginn 5. september, lagði formaður nefndarinnar fram tillögu um að nefndin yrði lögð niður og verkefni hennar falin bæjarráði.
Var tillagan samþykkt og vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Stjórnsýslunefnd hefur haft það hlutverk að gera tillögur um stefnumörkun á sviði stjórnsýslu Akureyrarbæjar. Nefndin á að vinna að því að stjórnsýsla verði sem skilvirkust og hagkvæmust ásamt því að móta reglur um ábyrgð bæjarfulltrúa og embættismanna.
Nefndin vinnur einnig að því að nýta rafræn upplýsingakerfi og rafræna stjórnsýslu til að stuðla að skilvirkum vinnubrögðum og greiða fyrir aðgangi almennings að upplýsingum og stofnunum bæjarins. Hún beitir sér fyrir fræðslu bæjarfulltrúa og starfsmanna ásamt því að stuðla að faglegum stjórnunarháttum Akureyrarbæjar.
Stjórnsýslunefnd hefur sem sérstök verkefni að samræma reglur og samþykktir um stjórnsýslu bæjarins í heild og um einstakar nefndir og ráð. Hún annast auk þess yfirumsjón með starfsáætlunum og árangursmælingum fyrir stoðdeildir bæjarins svo sem fyrir bókhald, fjárreiður, launavinnslu, skjalastjórn, íbúaskrá, tölvuþjónustu, vefsíðu og þjónustuanddyri.

