Þessa dagana er hægt að taka þátt í happdrætti sem verslanir á Glerártorgi standa fyrir til styrktar Aflinu - samtökum gegn kynferðis- og heimilisofbeldi. Vinningar eru fjölmargir og augljóst að verslanirnar á Glerártorgi gera sér grein fyrir mikilvægi samtakanna.
Miðinn kostar aðeins 1.000 krónur og dregið verður úr seldum miðum með viðhöfn laugardaginn 6. apríl en það er Sigurvin Fíllinn sem stýrir drættinum.
Í nýútkominni ársskýrslu Aflsins kemur fram að skera hafi þurft niður hópastarf vegna fjárskorts og segir Anna María Hjálmarsdóttir, formaður Aflsins, það vera ömurlegt í ljósi þess að brotaþolum fjölgi mikið milli ára. „Aflið er alltaf rekið með miklu tapi, enda gríðarlega mikil vinna sem þessi starfsemi útheimtir, ráðgjafar okkar inna af hendi sjálfboðavinnu sem kostaði milljónir á hverju ári ef greitt væri fyrir hana,“ segir Anna María og bætir því við að fyrirtæki, félagasamtök og einstaklingar á Norðurlandi hafi stutt vel við bakið á Aflinu og séu ómetanlegur styrkur sem gerir Aflinu kleyft að styðja vel við þá sem beittir hafa verið ofbeldi ásamt því að halda uppi virkri umræðu um þetta málefni.
Sölufólk er gjarnan staðsett á Glerártorgi og auðvelt er að nálgast þar miða en einnig er hægt að skilja eftir skilaboð á Facebooksíðu Aflsins og fá miða senda heim.

