Norðlendingum hefur sumum hverjum ekki orðið svefnsamt síðustu nætur en röð jarðskjálfta, flestir með upptök skammt frá Grímsey, hefur dunið yfir þar sem stærsti kippurinn mældist 5,5. Eðli málsins samkvæmt hafa Grímseyingar fundið enna mest fyrir látunum en áhrifasvæðið nær frá Norðvesturlandi og að Raufarhöfn, ef ekki víðar. Almannavarnir lýstu sl. þriðjudag yfir óvissustigi. Jarðskjálftafræðingar segja vísbendingar um að norðlensk jörð gæti enn skolfið um langa hríð.
Skjálftanna hefur á sumum svæðum Norðurlands orðið vart í tugatali og man ungt fólk ekki annað eins. „Rúmið mitt fór næstum á loft og ég er yfir 100 kíló,“ sagði Magnús Magnússon Húsvíkingur eftir að stærsti skjálftinn reið yfir aðfararnótt þriðjudags.
Ekki hafa borist tilkynningar um meiri háttar tjón en glamrað hefur í borðbúnaði á Akureyri og hurðir hrist til. Ólíkar reynslusögur af upplifun Norðlendinga af skjálftunum hefur m.a. mátt lesa á samskiptavefnum Facebook síðustu daga. Fátt er um meira rætt en hræringarnar, enda ekki útilokað að stór skjálfti dynji yfir.
Á vef almannavarna er mælt með að fólk sem óttast stóran skjálfta festi skápa, hillur og þunga muni í gólf eða vegg. Varast skal að stilla þungum munum ofarlega í hillur eða á veggi án þess að festa þá tryggilega. Gott er að kynna sér staðsetningu og lokun á vatnsinntaki og rafmagnstöflu. Festa hitaveituofna tryggilega. Leki getur valdið miklu tjóni ef ekki er lokað strax fyrir vatnið. Sama gildir um frágang á þvottavélum og uppþvottavélum.
Ekki er æskilegt að láta rúm standa undir gluggum ef hætta er á jarðskjálftum. Hlusta ber á tilkynningar og fyrirmæli sem gefin eru í útvarpi. Á meðan á stórskjálfta stendur er gott að krjúpa og skýla sér.
Í þessu myndbandi frá Landsbjörg er farið yfir leiðbeiningar um forvarnir gegn tjóni og rétt viðbrögð í jarðskjálftum


