Veffyrirtækið Stefna á Akureyri hefur gefið Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna (SKB) nýja vefsíðu í vefumsjónarkerfinu Moya. Nýr vefur er hugsaður til miðlunar á upplýsingum um samtökin, félagsmenn geta lagt inn umsóknir um stuðning í gegnum vefinn og hann mun nýtast til fjáröflunar í gegnum vefverslun. Heildarverðmæti gjafarinnar er metið á rúmlega 1 milljón króna en það felur í sér hönnun, uppsetningu, aðstoð og hýsingu í tvö ár. Gréta Ingþórsdóttir, framkvæmdastjóri SKB, opnaði nýju vefsíðuna formlega 26. september á slóðinni www.skb.is og þakkaði Stefnu kærlega fyrir myndarlegan stuðning við félagið. „Heimasíðan er mikilvæg til að koma á framfæri upplýsingum um félagið og eiga samskipti við félagsmenn, auk þess að vera gátt fyrir umsóknir um styrki og stuðning. Þá geymir heimasíðan sögu félagsins að einhverju leyti og birtir mynd af starfsemi þess á hverjum tíma. Metnaðarfull og falleg heimasíða er vitnisburður um starfsemina og á að endurspegla hana með sambærilegum hætti,“ segir Gréta.
„Það er okkur sönn ánægja að styðja við samtökin og leggja okkar að mörkum þeim til stuðnings,“ segir Matthías Rögnvaldsson, framkvæmdastjóri Stefnu. „Stefna fagnar 10 ára afmæli sínu um þessar mundir og okkur langaði að fagna tímamótunum með því að leggja góðu málefni lið. Niðurstaðan varð að styrkja Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna um nýjan vef. Þar er unnið frábært starf og félagið vel að styrknum komið. Það er von okkar að vefurinn eigi eftir að nýtast samtökunum vel.“
-Fréttatilkynning





