Það er mikið um að vera í VMA þessa dagana en á morgun, fimmtudag, kl. 17:30 fer útskriftarsýning hársnyrtinema fram á Glerártorgi og um helgina sýna nemendur listnámsbrautar lokaverkefni sín í Deiglunni og Mjólkurbúðinni.
Í lokaverkefnum sínum vinna lokaársnemendur á hársnyrtibraut saman að sýningu með öllu tilheyrandi. Finna þarf sýningarstað, samstarfsaðila, dag og tíma, vinna auglýsingu, finna föt, sjá um förðun og gera kostnaðaráætlun ásamt því að kynna sýninguna í fjölmiðlum og margt fleira. Sýningin er þáttur í námsmati þar sem framlag nemenda er metið með tilliti til virkrar þátttöku í undirbúningi, útfærslu sýningar og heildar útlit sýningar en sérstök áhersla er lögð á hárgreiðslur og útlit fyrirsætanna. Nemarnir sem standa að sýningunni eru Sigríður Árnadóttir, Tinna Sigurgeirsdóttir, Helga Vigdís Aðalbjörnsdóttir, Heiðdís Austfjörð Óladóttir, Arney Ágústsdóttir, Alda Ýr Guðmundsdóttir, Linda Baldursdóttir, Svanborg Anna Jóhannsdóttir, Alexander Kristjánsson og Erla Heiður Tryggvadóttir.
Sýning á lokaverkefnum listnámsnema opnar föstudaginn 22. nóvember kl. 20.00 í Deiglunni og Mjólkurbúðinni. Sýningin er einnig opin laugardag og sunnudag frá kl. 14.00 - 17.00. Þar sýna nemendur fjölbreytt verk, svo sem innsetningar, málverk, skúlptúr, fatahönnun, teikningar, vefnað og fleira. Verkin eru afrakstur sjálfstæðrar vinnu nemanna í lokaáföngum af hönnunar- og textílkjörsviði og myndlistakjörsviði. Nemarnir sem sýna verk sín eru: Agnes Yolanda Tulinius, Aldís Marta Siguðrardóttir, Anna Nidia Tulinius, Dagbjört Héðinsdóttir, Dagný Halla Bassadóttir, Ellen Guðmundsdóttir, Eyþór Mar Skúlason, Harpa Sveins, Katrín Inga Gylfadóttir, Katrín Vinther Reynisdóttir, Kristrún Hrafns, María Björk, Sesselja Fanneyjardóttir, Sindri Heiðmann Þórarinsson, Styrmir Þór Sævarsson, Tanja Ýr Einisdóttir og Valtýr Örn Stefánsson Jeppesen
-SBS


