Enginn skandall

Enginn skandall

Baldvin Ringsted

Annað slagið heyrast raddir utan úr þjóðfélaginu um mikilvægi þess að efla verkmenntun. Slíkur góðvilji er okkur sem vinnum að þessum málaflokki kærkominn en oftar en ekki er slegið um af vanþekkingu. Nú nýverið var boðað til fundar innan atvinnulífsins hvar yfirskriftin var á þann veg að viðkomandi aðilar höfðu áhyggjur af lítilli aðsókn í verknám og þeirri spurningu varpað fram hvort sá skortur hamlaði atvinnuuppbyggingu á svæðinu.

Það er skemmst frá því að segja að aðsókn í verknám við Verkmenntskólann á Akureyri er með miklum ágætum. Um 400 nemar stunda þar verknám af ýmsum toga og má til dæmis nefna að árleg inntaka nýnema á grunndeild málm- og véltæknigreina er ríflega 60 manns. Aðrar grunndeildir eru einnig vel sóttar, það er helst að eftir séu nokkur pláss í byggingagreinum en sá flokkur starfsgreina fór einna verst út úr hruninu og ekki von á öðru en að eitthvað hægði á nýliðun þar. Þar hefur samt verið ákveðinn stígandi á undanförnum árum og útlitið er nokkuð gott. Þessar upplýsingar voru sendar fréttamanni RUV í framhaldi af frétt um ofangreinda yfirskrift en engin viðbrögð bárust frá fréttastofu allra landsmanna, enda ekki um neinn skandal að ræða.
Fyrir kosningar heyrist gjarnan að efla þurfi verknám en ég man ekki eftir að þær hugmyndir hafi verið útfærðar af nokkru viti. Slagorðið er engu að síður gott. Það má því greina velvilja úr ýmsum áttum en minna um efndir, minna um að þeir sem hæst hrópa kynni sér málin til hlítar.

Iðnfræðsla og önnur starfsmenntun hefur staðið í skugga stóra bróður, menntaskólans og enn þykir mun fínna að hafa stúdentspróf en sveinspróf. Angar af þessu viðhorfi skjóta upp kollinum af og til og má t.d. nefna að þegar ljóst varð að Becromal kæmi með starfsemi til Akureyrar var þáverandi iðnaðarráðherra tíðrætt um kjörlendi staðsetningarinnar vegna nálægðar við Háskólann á Akureyri. Ekki var minnst einu orði á VMA þó svo að flestir iðnaðarmenn sem þar starfa hafa hlotið sína menntun við þá stofnun. Mér er ekki kunnugt um hversu margir þar hafa stundað nám við HA.

Ef við víkjum að upphafsspurningunni, hvort skortur á iðnaðarmönnum á svæðinu skapi mönnunarvandamál tel ég að það öndverða eigi frekar við í flestum greinum, þ.e. að atvinnulífið hafi ekki nógu mörg nemapláss fyrir starfsnám. Það er rífandi gangur í mörgum greinum og má t.d. nefna að stálsmiðaskortur hefur verið viðvarandi á svæðinu en VMA er samt sem áður með langflesta stálsmiði í námi af öllum framhaldskólum á Íslandi . Það tekur rúm 4 ára að fullnema stálsmið og hefur samstarf VMA og Slippsins verið afar farsælt og árangursríkt hvað það varðar. Það hefur meðal annars orðið til þess að fleiri stálsmiðir hafa lokið sveinsprófi á síðustu 3 árum en áratuginn þar á undan Aðrar greinar hafa margar hverjar þurft að takmarka nemafjölda og án þess hluta námsins sem fram fer á vinnustöðum verður neminn ekki fullnuma.

Hér er kjarni málsins: atvinnulífið og skólinn þurfa að vera samstíga í að kortleggja þörfina á fagmönnum, það er of seint að kalla eftir fagmönnum í einhverri grein ef þeir eiga að mæta í vinnu daginn eftir. Þegar hafa verið stigin nokkur skref í átt til samstarfs og samræðu þessara aðila og er raunin góð. Samstarf á fleiri sviðum er í burðarliðnum og má ætla að það leiði til hnitmiðari sóknar innan hinna ýmsu sviða starfsmennta.

Ef atvinnulíf og stjórnmálamenn vantar raunveruleg áhyggjuefni að vinna úr má segja að alvarleg staða sé að koma upp í starfsmenntageiranum vegna fjárveitinga til framhaldsskólanna. Ekki fæst fé til endurnýjunar tækjabúnaðar. Það segir sig sjálft að það er lítið vit í að kenna verðandi rafeindavirkjum að gera við myndbandstæki af því skólinn fær ekki að kaupa geislaspilara, svo tekið sé skiljanlegt en ósatt dæmi. Ör þróun í vélbúnaði, tölvustýringar og framþróun í tækni hefur ekki náð inn í skólana þar sem ekki er til fjármagn til að kaupa litlar kennsluvélar. Við höfum brugðist við með því að leita til atvinnulífsins og fá sérfræðinga til að kenna á þessar vélar en það er skammtímalausn vegna neyðar. Það væri fróðlegt að fá yfirlýsingar um þessa vá innan starfsmenntageirans og viðbrögð við henni frá velunnurum þessa málaflokks.

Baldvin Ringsted
Höfundur er kennslustjóri tæknisviðs VMA

Sigurvegarar Grenndargralsins 2013

Bergvin Leif Garðarsson og Patrik Orri Jóhannsson úr 9. bekk í Giljaskóla eru sigurvegarar í Leitinni að Grenndargralinu árið 2013. Leitinni lauk föstudaginn 15. nóvember. Dagurinn hófst á því að ... Lesa »

Hluti kennara í mikilli hættu

Á sama tíma og fjöldi manns byggir afkomu sína á að leigja út rödd sína eru hávaðamörk við vinnu víða að engu höfð. Það getur orðið til þess að fólk brýnir rödd sína þannig að skaði hlýst af, segir ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Last fá bankar sem taka of háa þóknun fyrir úttektir í öðrum bönkum. Svo mælir bæjarbúi á Akureyri. „Ég fór í hraðbanka, sem er merktur Arion banka en er sjálfur í viðskiptum við Landsbankann, og tók ... Lesa »

Hreyfing sem eflir konur

Amelia Earhart flugkona var Zontakona. Stuttu eftir hvarf hennar 1937 var stofnaður sjóður innan Zontahreyfingarinnar í Bandaríkjunum til að styrkja konur til doktorsnáms í greinum sem tengdust ... Lesa »

L-listinn fengi einn bæjarfulltrúa

L-listinn fengi einn bæjarfulltrúa ef kosið yrði í sveitarstjórnarkosningum núna. Þetta kemur fram í könnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði og birt er í Morgunblaðinu í dag. Listinn ... Lesa »

Bókin um Helenu

Bók Óskars Þórs Halldórssonar blaðamanns um Helenu Eyjólfsdóttur söngkonu, Gullin ský, er bók sem verður öllum þeim sem kynnst hafa Helenu persónulega eða eiga minningar við tónlist hennar ... Lesa »

Benedikt Sigurðarson

Lækkum iðgjöld í lífeyrissjóð – bætum kjör án kostnaðarhækkana og verðbólgu

Frá Hruni hefur verulegur fjöldi fólks glímt við versnandi kjör, lægri laun og atvinnuleysi en umfram allt hefur greiðslubyrði af húsnæði - bæði lán og leiga - rokið upp fyrir velsæmismörkin. Hækkun ... Lesa »

Ekki prófkjör hjá Samfylkingu

Á félagsfundi Samfylkingarinnar á Akureyri í gær, 21. nóvember, var samþykkt að kosin yrði uppstillingarnefnd til að velja frambjóðendur á framboðslista Samfylkingarinnar fyrir ... Lesa »

STAFRÓFIÐ eftir Hlyn Hallsson

Út er komið hjá Flóru og forlagi höfundanna bókverkið „Stafrófið - Das Alphabet (IS) - The Alphabet (IS)” eftir Hlyn Hallsson. Hlynur hefur áður gefið út nokkrar bækur og bókverk og þar má nefna ... Lesa »

Einlægur á Alþingi

Hjálmar Bogi Hafliðason, varaþingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, lét mikið að sér kveða þegar hann sór trúnaðareið og settist í fyrsta skipti inn á Alþingi í vikunni. Hann var ekki ... Lesa »

Fimm nýir heiðursfélagar Leikfélags Akureyrar

Á aðalfundi Leikfélags Akureyrar í gærkvöldi voru fimm listamenn gerðir að heiðursfélögum. Það eru þau Aðalsteinn Bergdal, Arnar Jónsson, Gestur Einar Jónasson, Saga Geirdal Jónsdóttir og Þórhildur ... Lesa »

Mikið agaleysi í umferðinni

„Ég rek mig á þetta á morgnana að fólk er ómerkt alveg í hrönnum. Hvar eru endurskinsmerkin?“ Spyr Haraldur Ævarsson atvinnubílstjóri. Í frétt blaðsins í síðustu viku kom fram gagnrýni á ... Lesa »

Cuba libre á Örkinni hans Nóa

Jazzklúbbur Akureyrar hefur legið í láginni undanfarin misseri en var í haust endurreistur og stendur fyrir tónleikum hljómsveitarinnar Cuba Libre í kvöld, föstudagskvöld. Hljómsveitin, sem hefur ... Lesa »

Vanti skilning á mikilvægi ferðaþjónustu

Ferðaþjónusta á hafnarsvæðinu við Dalvík hefur verið afgangsstærð að sögn Freys Antonssonar framkvæmdastjóra og eiganda hvalaskoðunarfyrirtækisins Arctic Sea Tours. Hann segir hvalaskoðun ... Lesa »

Samtök atvinnulífsins sökuð um sögufölsun og hræðsluáróður

Stéttafélögin Framsýn og Verkalýðsfélag Akraness fordæma harðlega auglýsingaherferð Samtaka atvinnulífsins sem þau segja vera ósmekklega og miða að því að gera lítið úr kröfum verkafólks um hækkun ... Lesa »

Silja Björk

Kynfræðsla 101

Ég man eftir vandræðalegasta grunnskólatíma lífs míns. Fimmti bekkur, náttúrufræðistofan og dönsk heimildarmynd um versta tilfinningarússíbana ævi okkar allra - kynþroskaskeiðið. Skilaboðin voru skýr ... Lesa »

Svar við Opnu bréfi til bæjarstjóra

Friðleifur Ingi Brynjarsson skrifar Opið bréf til bæjarstjóra 14. nóvember sl. og birtir í Akureyri vikublaði. Hann hefur ákveðið að bera upp opinberlega tvær spurningar til mín sem æðsta yfirmanns ... Lesa »

Samherji svarar ekki fyrirspurn

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, hefur ekki svarað fyrirspurn frá Akureyri vikublaði um hvort honum finnist réttlætanlegt að ríkið verði jafnvel af 100 milljörðum króna vegna gjafa á ... Lesa »

Enginn skandall

Annað slagið heyrast raddir utan úr þjóðfélaginu um mikilvægi þess að efla verkmenntun. Slíkur góðvilji er okkur sem vinnum að þessum málaflokki kærkominn en oftar en ekki er slegið um af vanþekkingu. ... Lesa »

Saga Kaffi Bjarkar

Vorið 2011 ákvað Akureyrarbær að bjóða út rekstur kaffihúss í Lystigarðinum. Umsóknir voru undir nafnleynd og bárust alls fjögur tilboð í reksturinn. Tilboði frá einkahlutafélagi í eigu okkar ... Lesa »

Lífið um helgina

Starfsfólk Akureyrarstofu heldur utan um viðburði sem fram fara á Akureyri. Hér má sjá lista yfir viðburði helgarinnar sem birtur er með góðfúslegu leyfi Akureyrarstofu. Listinn er birtur með ... Lesa »

Akureyrsk ungstjarna

Akureyrsk stúlka í 6. bekk, Eik Haraldsdóttir, hampaði í síðustu viku sigurlaunum í Lundarskóla þegar Gunnar Helgason leikari tilkynnti henni fyrir framan starfsfólk og nemendur að hún hefði sigrað í ... Lesa »

Óvíst er um örlög þessarar rjúpu því myndin var tekin áður en veiðitímabilið hófst

Veiddi sami maðurinn 190 rjúpur á tveimur helgum?

Þótt verulegar takmarkanir hafi verið á fjölda veiðidaga á rjúpu í vetur segja veiðimenn að veiðin hafi gengið vel. Má því fullyrða að rjúpur verði víða á jólaborðum í ár. Í eina tíð þóttu rjúpur ... Lesa »

Þetta er alveg frábært

„Aðstæður verða mjög góðar þegar við opnum skíðasvæðið á morgun, föstudag. Það er búið að snjóa töluvert og það hefur verið kalt síðustu daga. Miðað við árstíma er þetta alveg frábært,“ segir ... Lesa »

Stjórnum því miður ekki veðrinu

Rekstraraðilar Kaffihússins Bjarkar hafa borið því við að óheppilegt tíðarfar og ónógur snjómokstur hjá Akureyrarbæ í Lystigarðinum hafi átt þátt í að svo fór sem fór varðandi rekstur kaffihússins ... Lesa »

Skoða meira