„Aðstæður verða mjög góðar þegar við opnum skíðasvæðið á morgun, föstudag. Það er búið að snjóa töluvert og það hefur verið kalt síðustu daga. Miðað við árstíma er þetta alveg frábært,“ segir Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli
Opnun svæðisins á morgun ber upp á sama árstíma og í fyrra. Ljóst er að margt skíðafólk er komið með fiðring í tærnar en stundum hefur fólk þurft að bíða eftir opnun fram í miðjan desember.
Þegar rigndi í byggð fyrir þremur vikum kyngdi snjó niðri í Hlíðarfjalli á meðan. Þá varð til mjög þétt undirlag og verða flestar skíðaleiðir í fjallinu opnar frá og með morgudeginum. „Það verður hægt að fara á toppinn,“ segir Guðmundur Karl kátur.
Nokkur hækkun hefur orðið á gjöldum í skíðabrekkurnar milli ára en á móti koma auknir notendamöguleikar. Vetrarkort á fullu verði hækkar úr 30.000 krónum í 39.000 krónur en í fyrsta skipti í skíðasögunni getur korthafi nú lánað kortið hverjum sem er. Þannig getur reykvískur skíðagestur fengið lánað kort heimamanns ef svo ber við.
-BÞ


