Þorsteinn Kristjánsson, Úlfur Logason og Kristján Blær Sigurðsson taka við verðlaunum á Laterna magica hátíðinni
Þrír ungir kvikmyndgerðarmenn frá Akureyri unnu til verðlauna á kvikmyndahátíðinni Laterna Magica sem fór fram í Vesterålen í Noregi. Þeir Þorsteinn Kristjánsson, Úlfur Logason og Kristján Blær Sigurðsson mættu með framlagið „Þórgnýr“ og sigruðu þeir í flokknum 14 – 16 ára, en í þeim flokki voru 28 aðrar kvikmyndir.
Forsagan að þátttöku þeirra á hátíðinni í Vesterålen er samstarf milli Menningarráðs Eyþings og Menningarráðs Vesterålen, en þessir efnilegu kvikmyndagerðarmenn hafa tekið þátt í kvikmyndahátíðinni Stulli, sem hlotið hefur styrki frá Menningarráði Eyþings.
„Þórgnýr“ er grín-heimildamynd um 16 ára gamlan dreng sem telur sig vera fyrsta íslenska mafíósann. Í kvikmyndinni er Þórgný og föður hans fylgt eftir í nokkra daga og skyggnst er inn í viðburðarrík líf þeirra.
Laterna Magica er svæðisbundin kvikmyndahátíð fyrir börn og unglinga í Vesterålen sem fer fram í lok nóvember á hverju ári. Þetta var í 22. sinn sem hátíðin er haldin og er aðal markmið hennar að hvetja til kvikmyndagerðar meðal ungs fólks. „Þetta er í fyrsta sinn sem kvikmynd frá kvikmyndahátíðinni Stulla tekur þátt í hátíðinni og því er þessi árangur einkar ánægjulegur,“ segir í tilkynningu.
Menningarráð Eyþings og Menningarráð Vesterålen fagna þessu samstarfi sem stendur til að þróa enn frekar.


