Globodent á Íslandi ehf. hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Í fyrirtækjaskrá kemur fram að félagið skilaði síðast inn ársreikningi fyrir árið 2009. Globodent var úrskurðað gjaldþrota 31. október sl. og er búið að skipa skiptastjóra.
Árið 2000 fékk Egill Jónsson, tannlæknir á Akureyri og upphafsmaður Globodent, verðlaun Nýsköpunarsjóðs fyrir viðskiptaáætlun sem m.a. miðaði að forvirkum aðgerðum og átti að lækka kostnað við tannlækningar. Í kjölfarið hófst vinna með Iðntæknistofnun. Bæjarfulltrúar Akureyrar samþykktu árið 2002 tugmilljóna króna framlag af opinberu fé til starfseminnar. Lagði Kristján Þór Júlíusson, þá oddviti sjálfstæðismanna á Akureyri og núverandi heilbrigðisráðherra, mikla áherslu á að málið fengi framgang. Enginn bæjarfulltrúi greiddi atkvæði gegn því að skattfé bæjarbúa væri lagt undir með þessum hætti þegar bæjarráð samþykkti afgreiðsluna en Oddur Helgi Halldórsson, L-listanum, sat hjá við afgreiðslu og sagði þá í viðtali við Morgunblaðið: „Mér finnst hlutirnir ekki liggja nógu vel fyrir og ég hef heldur ekki alveg nógu mikla trú á þessu.“
Bundnar voru vonir við að Globodent yrði leiðandi fyrirtæki á heimvísu, enda boðaði fyrirtækið alheimsbyltingu í tannlækningum eins og nafnið sýnir vel. Rúv birti sjónvarpsfrétt þar sem Egill boraði í tönn íbúa með sérútbúnu tæki og setti staðlaða fyllingu í. Aðrir tannlæknar á Íslandi voru margir skeptískir á hugmyndina.
Árið 2010 kom fram í fréttum að Globodent hefði misst tiltrú fjárfesta. Hlutafé hljóp þá á hundruðum milljóna króna. Reynt var þá að selja fyrirtækið til útlanda.
Ekki náðist í fjármálastjóra Akureyrarbæjar til að fá staðfestingu um tap bæjarsjóðs eða hvort hægt er að gera kröfur í eignir.
-BÞ








