Ungmennin sem fóru til Finnlands frá Íslandi heita Svanur Berg Jóhannsson, Embla Eir Halldórsdóttir, Axel Gústavsson, Kristín Tómasdóttir, Freysteinn Sverrisson, Kristrún Jóhannesdóttir, Sveinn Andri Lund og Máney Dís Davíðsdóttir
Leikklúbburinn Saga sem Akureyringum er að góðu kunnur verður með í samnorrænu verkefni sem nefnist Fenris sumarið 2014. Fenris er norrænt unglingaleikhús en fyrsta Fenris-verkefnið var sýnt árið 1985.
Upphaf þátttöku má rekja til lauslegra tengsla sem komið var á milli sex unglingaleikhópa á Norðurlöndum í tilefni af alþjóðlegu ári unglinga á vegum Sameinuðu Þjóðanna. Alls taka um 80- 100 ungmenni þátt í Fenris-verkefninu, en auk Íslands koma þeir frá Færeyjum, Finnlandi, Noregi og Danmörk.
Sýningin verður flutt milli Norðurlanda og er viðamikil og krefst mikils og vandaðs undirbúnings. Æfingar eru hafnar því 27. desember sl. fóru íslensku krakkarnir til Finnlands og æfðu þar í tíu daga.
Um páskana fara ungmennin til Danmerkur þar sem settar verða upp vinnubúðir. Að öðru leyti vinna hóparnir í sinni heimabyggð hver að sínu verkefni sem sameinast í eitt stórt leikverk næsta sumar. 4. júlí koma allir leikklúbbarnir til Akureyrar og setja saman verkið og æfa í viku. Verkið verður frumsýnt í Hofi á Akureyri, fer þaðan til Reykjavíkur, svo á Lunga hátíðina á Seyðisfirði og þaðan í Norðurlandaförina sem endar 4. ágúst 2014.
Krakkarnir sem fóru til Finnlands frá Íslandi heita Svanur Berg Jóhannsson, Embla Eir Halldórsdóttir, Axel Gústavsson, Kristín Tómasdóttir, Freysteinn Sverrisson, Kristrún Jóhannesdóttir, Sveinn Andri Lund og Máney Dís Davídsdóttir. Þau segja það hafa verið mikla upplifun að verja áramótum í öðru landi frá fjölskyldu og vinum en þau hafi eignast fullt af nýjum vinum.
Leikstjórinn sem fer með þeim út og leikstýrir þeim hér heima á æfingum er Gréta Kristín Ómarsdóttir.
-BÞ






















