Ég tók þá ákvörðun fyrir fjórum árum að gefa kost á mér á lista Sjálfstæðisflokksins og fékk kosningu í 3. sætið. Síðan þá hef ég lagt mig allan fram sem varabæjarfulltrúi og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum á þeim tíma. Ég tel að miðað við hvernig núverandi kjörtímabil hefur þróast sé eðlilegt að að gefa kost á mér í oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Með beinni aðkomu að málefnum Akureyrarbæjar hef ég átt greiðari leið en áður að tala fyrir þeim málefnum sem ég tel mikilvæg fyrir bæinn. Þar hef ég meðal annars lagt mikla áherslu á samgöngubætur: Styttingu þjóðvegarins á milli Akureyrar og Reykjavíkur; Uppbyggingu Akureyrarflugvallar til millilandaflugs; Vaðlaheiðargöng og nýjan Kjalveg. Þá hef ég verið í forystu fyrir þeirri baráttu landsbyggðarfólks að framtíð Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýrinni verði tryggð.
Ég tel að þessi barátta fyrir betri samgöngum styðji með beinum eða óbeinum hætti brýn hagsmunamál bæjarins svo sem uppbyggingu atvinnulífsins, ekki síst á sviði ferðaþjónustu.
Þótt þessi málefni skipti miklu, er það ekki svo að þau séu mun brýnni en önnur. Áhersla á atvinnuuppbyggingu og nýsköpun er Akureyri þar einnig mikilvæg. Við þurfum að virkja betur þau tækifæri sem fylgja því hæfileikaríka unga fólki sem vill búa í bænum en fær ekki störf við hæfi. Koma þarf vinnufúsum til verka.
Þar er af mörgu að taka. Halda áfram uppbyggingu ferðaþjónustu, meðal annars með áherslu á að nýta tækifæri sem liggja í vetrarferðaþjónustu með áframhaldandi uppbyggingu skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli.
Það er sannfæring mín að uppbygging Norðurslóða sé á næstu misserum tækifæri Akureyringa. Þar er mikilvægt að líta til möguleika á Grænlandi á næstu árum og áratugum. Því tengd er uppbygging þjónustuhafnar á Dysnesi til að þjónusta möguleg umsvif á Grænlandi í tengslum við námavinnslu og olíuleit við austurströnd Grænlands og á Drekasvæðinu.
Þeir sem mig þekkja vita að ég er mjög bjartsýnn á framtíðina hér í Akureyri. En til að byggja upp atvinnutækifæri, innviði og góða þjónustu við bæjarbúa er það grundvallaratriði að bæjarfélagið sé vel rekið og skuldum þess stillt í hóf. Svo hefur ekki verið undir forystu núverandi meirihluta. Það er algjörlega ótækt að bæjarfélagið hafi verið rekið með halla síðastliðin þrjú ár. Skuldastaða Akureyrar er þannig að ekkert má út af bregða í rekstri.
Fái ég umboð til að leiða Sjálfstæðisflokkinn til sigurs á Akureyri, mun ég halda áfram að vinna að uppbyggingu bæjarins fyrir alla Akureyringa.
Njáll Trausti Friðbertsson






















