Óskar Bergsson, oddviti Framsóknarmanna í Reykjavík, gagnrýndi Jón Gnarr borgarstjóra á opnum fundi í Stúdentakjallaranum í gær. Sagðist hann uggandi yfir þeim orðum borgarstjórans um að Jesú Kristur hafi hugsanlega verið hommi.
Hildur Eir Bolladóttir, sóknarprestur í Akureyrarkirkju, segir að það sé dásamlegt ef Jesú hafi verið hommi:
„Jesú Kristur þekkir allar mannlegar tilfinningar. Margir hafa pælt í því hvort Jesú hafi verið með athyglisbrest, eða hvort hann hafi verið kona. Sumir hverjir hafa einnig gengið svo langt að kalla hann „Kristu“. Það skiptir svo sem engu máli hvort hann hafi verið samkynhneigður eða ekki, og það er bara dásamlegt ef hann hefur verið hommi.“ Segir Hildur Eir.
„Ég hef jafn litlar áhyggjur af því hvort hann hafi verið hommi, eins og ég hef litlar áhyggjur af stöðu kristninnar í skólum landsins“ Bætir Hildur Eir við. „Við þurfum ekkert að vera þar stanslaust inni á gafli. Við höfum í sjálfu sér nóg að gera, skólarnir kalla okkur til ef áföll verða og við mætum og sinnum þeim störfum fúslega. Ég deili ekki þessum áhyggjum með Óskari Bergssyni.“























