Fjölskylda sem hugðist nýta sér gjafabréf frá Mæðrastyrksnefnd í versluninni Imperial á Akureyri varð frá að hverfa þegar starfsfólk búðarinnar benti á að gjafabréfið ætti ekki við á útsölu. Verslunareigandi segir miður ef misskilningur hafi orðið.
Búðin hafði auglýst að ákveðin prósenta af sölu í búðinni rynni eitt opnunarkvöld fyrir jól til Mæðrastyrksnefndar. Samkvæmt heimildum var ekki tekið fram á bréfinu að gjafabréfin mætti ekki nota á útsölu. Eftir jól fór móðir, með bréf sem hún hafði fengið úthlutað frá Mæðrastyrksnefnd með ungling sinn í búðina þar sem mægðinin völdu föt fyrir unglinginn innan fjárhæðarramma gjafabréfsins. Tilhlökkun er sögð hafa verið hjá unglingnum að eignast ný og fín föt. Við kassann kom babb í bátinn. Starfsmaður búðarinnar sagði að ekki væri hægt að nota gjafabréfið á útsölu. Héldu mæðginin tómhent á brott í kjölfar viðkvæmra orðaskipta. Móðirin er ósátt við ekki bara afgreiðslu fólksins heldur einnig framkomu verslunarfólksins. Hefur lykilfólk innan Mæðrastyrksnefndar haft veður af málinu.
Akureyri vikublað leitaði sjónarmiða Imperial við vinnslu fréttarinnar. Verslunin sendi blaðinu yfirlýsingu vegna málsins. Þar kemur fram að verslunin hafi í góðri trú gefið af sér og muni halda áfram að styrkja góð málefni hér í bæ. Það hafi Imperial gert í desember síðastliðnum t.d. með því að gefa gjafabréf sem nýtast mættu vel þeim sem ekki hefðu annars haft ráð á að versla sparifatnað fyrir sig eða börn sín fyrir hátíðarnar. „Ef einhverjir sem þegið hafa slík gjafabréf hafa misskilið tilgang þeirra þá er það miður en ég vil ítreka að bréfin eru í fullu gildi áfram og koma sér vonandi vel fyrir þá sem vilja þiggja þau,“ segir í yfirlýsingu frá Halldóri Magnússyni verslunareiganda Imperial.
-BÞ






















