Félagsfundur Náttúrulækningafélags Íslands hefur sent frá sér ályktun þar sem segir að í frumvarpi til fjárlaga árið 2014 sé Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands gert að taka á sig allan niðurskurð endurhæfingarstofnana, þrátt fyrir að fá einungis 20,2% af heildarfjárveitingu til málaflokksins.
„Þeim niðurskurði er bætt við ótæpilegan niðurskurð liðinna ára þegar stofnunin hefur mátt þola meiri lækkun framlaga en aðrar heilbrigðisstofnanir þrátt fyrir að viðurkennt sé að stofnunin veiti góða þjónustu gegn lægra verði en aðrar stofnanir.“
Heilsustofnunin hefur starfað samfellt í tæplega 60 ár og segir á ályktuninni að hún hafi sýnt og sannað að hún sé mikilvæg í heilbrigðisþjónustu landsmanna, ekki síst hafi landsbyggðin notið hennar. Stofnunin starfi samkvæmt gildum þjónustusamningi og hafi staðið við samninginn af sinni hálfu og engar athugasemdir verið gerðar við þjónustu sem veitt hefur verið.
„Verði um niðurskurð að ræða er það lágmarkskrafa að fyllsta jafnræðis og sanngirni sé gætt þegar fjárframlög eru ákveðin til endurhæfingarstofnana og að ekki verði gert upp á milli þeirra eins nú er gert ráð fyrir m.t.t. Heilsustofnunar. Félagsfundur Náttúrulækningafélags Akureyrar, haldinn laugardaginn 23. nóvember 2013, mótmælir þeim niðurskurði sem áformaður er til Heilsustofnunar NLFÍ í Hveragerði í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2014,“ segir á ályktuninni.
-BÞ








