Hraðamælingar fyrir nýju umferðargötuna Dalbrautina frá Þingvallastræti að Miðhúsabraut sýna að langstærstur hluti ökumanna ekur yfir hraðamörkum og eru dæmi um ofsaakstur. Ökuhraði og ógn bíla við skólabörn var ein helsta röksemd íbúa sem lögðust gegn framkvæmdinni og segir íbúi að krafan sé að brugðist verði strax við með öflugum hraðahindrunum.
Meðalhraðinn við Heiðarlund 8 er nærri 50 km á klukkustund. Þar er leyfilegur hámarkshraði 30 km. Þá er meðalhraði nálægt 40 km við KA-völlinn þar sem gangbraut er fyrir skólakrakkana. „Einnig kemur fram að mesti hraði sem mældist við KA völl eru 92 kílómetrar á klukkustund sem eru alveg skelfileg tíðindi, að aðstæður séu þannig að ökumenn geti ekið á slíkum ofsahraða á þessu viðkvæma svæði. Engar hraðahindranir eru á götunni þrátt fyrir óskir okkar íbúa á skipulagstímabilinu, fyrir utan gangbrautina sem virðist ekki skila tilætluðum árangri sem hraðahindrun. Einnig hafa yfirvöld ekki lokið við hina gangbrautina sem á einnig að vera hraðhindrandi,“ segir Elvar Sævarsson, kennari og faðir tveggja barna í Lundarskóla.
Fjöldi bíla á sólarhing í götunni hleypur á þúsundum samkvæmt mælingunni.Í gögnum sem blaðið hefur séð kemur fram að frá 26% ökumanna og allt upp í 96% þeirra aki of hratt. Mælingar eru mismunandi eftir mælistöðum og akstursstefnu.
Elvar getur þess einnig að auknum hraða fylgi aukinn hávaði sem hafi áhrif á íbúa og þá sem séu við leik og störf á svæðinu.
„Lærdómurinn er kannski fyrst og fremst sá að stór hluti ökumanna eru ekki tilbúinn að virða hraðatakmarkanir ef aðstæður leyfa annað. Fyrirbyggjandi aðgerðir eru nauðsynlegar til að tryggja öryggi mikilvægustu einstaklinga samfélagsins, þ.e.a.s. unga fólksins í umferðinni,“ segir Elvar.
-BÞ








