Last fá þeir sem búa svo um hnútana að hér verður á endanum hvergi hægt að aka um götur bæjarins án þess að eyðileggja ökutæki á hraðahindrunum, segir karl. Hann telur að áhersla á 30 km hámarksakstur sé gengin út í öfgar…
Lof fá þeir sem hugsa áður en þeir tala, segir karl sem sendi blaðinu bréf. Hann skrifar vegna klausu hér í dálkinu þar sem skíðagöngukona lastaði gangandi vegfarendur fyrir að troða niður og skemma skíðagönguslóðina á göngubrautinni í Kjarnaskógi. „Ég verð víst að lýsa mig sekan á þessu skemmdarverki að einhverju leyti og biðst ég afsökunar á þessu spellvirki, hef þó mér til afsökunar að ég geng þennan fallega hring einusinni til tvisvar í viku mestan hluta ársins, til að reyna að viðhalda þreki, þegar aðstæður leyfa. Ég brúka göngustafi og stundum mannbrodda í hálku fyrir þær sakir að ég bjálfaðist til að láta vísa lækna greina í mér krankleika sem nefndur er M.S. (multeple sclerosis) fyrir 36 árum síðan, sem veldur því að núorðið þarf ég dálítið breiðari gangstíg vegna skorts á jafnvægi en renningar þeir hvor sínum megin við skíðabrautina bjóða upp á. Vona að þessi afsökunarbeiðni verði tekin til grein svona að loknum kosningum þegar allir reyna að vera kurtreisir og prúðir!“…
Last fá enn og aftur þeir sem drógu það úr hófi að fjarlægja ummerkin eftir AK Extreme, segja lesendur sem haft hafa samband í hrönnum vegna Eimskips gámanna neðan við sundlaugina. Einn segir að bæði séu bílastæði úr leik vegna þessa, þá sé af þessu sjónmengun og hætta. Einnig liggi spýtur og bretti á víð og dreif, í grennd skólalóðar og andapollurinn sé fullur af rusli. „Last fá Eimskip og Akureyrarbær vegna þessa,“ segja íbúar… Lof fá þó þeir sem loksins hafa þó séð um að fjarlægja gámana.
Lof fær yfirmaður kjörstjórnar í NA-kjördæmi fyrir að ritskoða hvaða frambjóðendur voru strikaðir út í kjördæminu, segir kona sem hringdi og gerði athugasemd eftir að rúv var neitað um upplýsingar um útstrikanir. Ritskoðun af bestu gerð – og sennulega kolólöglegt að auki, bætti konan við…
