Við undirrituð, nýkjörnir þingmenn og varaþingmenn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðausturkjördæmi, þökkum kjósendum veittan stuðning og traust. Úrslitin, tæp 16% atkvæða og tveir kjördæmakosnir þingmenn, eru góður varnarsigur og betri en kannanir höfðu spáð okkur. Á lokaspretti kosningabaráttunnar fundum við vel þann meðbyr sem þessu skilaði.
Kosningastjóra og starfsmönnum kosningamiðstöðva sem og miklum fjölda sjálfboðaliða og stuðningsmanna sem unnu ómetanlegt starf færum við bestu þakkir.
Vinstrihreyfingin grænt framboð náði með kraftmiklum endaspretti að verja stöðu sína betur en á horfðist. Með rétt tæplega 11% fylgi og 7 þingmenn er samhentum flokki, undir forustu glæsilegs formanns sem nýtur trausts og virðingar langt út fyrir okkar raðir, ekkert að vanbúnaði að hefja nýtt uppbyggingarskeið.
Við munum vinna stefnumálum flokksins og hagsmunum Norðausturkjördæmis allt það gagn sem við getum og aðstæður leyfa. Við horfum bjartsýn fram á veginn.
Við óskum íbúum Norðausturkjördæmis gleðilegs sumar og þökkum fyrir okkur.
Steingrímur J. Sigfússon
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir
Edward H. Huijbens
Ingibjörg Þórðardóttir

