Súkkulaðikaka með rauðrófum

Súkkulaðikaka með rauðrófum

Rauðrófur gefa dásamlega mýkt og raka í þessa köku og stífþeyttar eggjahvítur gera að verkum að hún er létt og ljúffeng. Soðnar rauðrófur er hægt að kaupa í lofttæmdum umbúðum í matvöruverslunum. Annars getur þú soðið rauðrófurnar og flysjað fyrir þessa uppskrift.

Kökudeig:

  • 2 plötur Siríus Konsúm
  • 5 msk rótsterkt kaffi
  • 180 gr smjör, í bitum
  • 125 gr hveiti
  • 2 tsk lyftiduft
  • 4 msk kakóduft
  • 4 eggjarauður
  • 5 eggjahvítur
  • 180gr hrásykur
  • 2 meðalstórar rauðrófur, soðnar

Smjörkrem:

  • 200gr flórsykur
  • 100gr smjör, mjúkt
  • 1 msk rauðrófusafi
  • 1 tsk vanilludropar
  • 4-6 msk rjómi

Súkkulaðikrem:

  • 2 plötur Siríus Konsúm
  • 2 dl rjómi
  • 5 msk síróp (eða 3 msk agave)

Byrjaðu á að hita ofninn í 170°C.

Bræddu 2 plötur af súkkulaði yfir vatnsbaði. Þegar súkkulaðið er bráðið hrærirðu kaffinu, smjörinu og hrásykrinum saman við þar til allt blandast vel. Taktu af hitanum og láttu kólna örlítið á meðan þú vinnur með eggin.

Þeyttu eggjahvíturnar þar til stífar.

Þeyttu eggjarauðurnar í annarri skál þar til þær verða ljósgular og freyða.

Maukaðu rauðrófurnar í matvinnsluvél eða mixer. Settu út í eggjarauðurnar og hrærðu vel saman. Bættu nú eggjarauðu og rauðrófublöndunni út í súkkulaðiblönduna. Hrærðu vel.

Settu þurrefnin (hveiti, lyftiduft, kakó) saman við og hrærðu vel saman svo verði mjúkt og kekkjalaust. Bættu að lokum stífþeyttum eggjahvítunum saman við, blandaðu varlega saman.

Helltu í tvö smurð 20-22cm springform og bakaðu í 30 mínútur.

Láttu kólna vel áður en þú setur smjörkremið á milli.

Til að útbúa smjörkremið þarf smjörið að vera alveg mjúkt. Hrærðu saman flórsykrinum og smjörinu, bættu rauðrófusafa út í til að fá fallegan lit, ásamt vanilludropunum. Notaðu rjómann til að ná þeirri þykkt á kremið sem þú vilt.

Settu smjörkremið á milli botnanna.

Bræddu í vatnsbaði súkkulaðið, rjómann og sýrópið. Helltu yfir kökuna.

Njóttu!

Helga Kvam
allskonar.is

Vortónleikar strengjasveita Tónlistarskólans haldnir í dag

Vortónleikar strengjasveita Tónlistarskólans á Akureyri eru haldnir í dag, mánudag, kl 17:30 í Hömrum í Menningarhúsinu Hofi. Fram koma Strengjasveit 1 en stjórnandi hennar er Ásdís ... Lesa »

Beðið eftir vorinu

Norðlenskir bændur eru orðnir langeygir eftir vorinu en talsvert snjóaði víða á Norðurlandi sl. nótt og bætti því enn á þann snjó sem fyrir var. Erlingur Ingvarsson bóndi á ... Lesa »

Símaskráin kemur út í dag

„Símaskráin 2013 sækir innblástur í sjálfboðaliðastarf Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og minnir á þau verðmæti sem íslenskt samfélag á í þeim 18.000 konum og körlum sem helga ... Lesa »

Stöngin inn er Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2013

Samvinnuverkefni Leikfélags Ólafsfjarðar og Leikfélags Siglufjarðar, Stöngin inn var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2013 af valnefnd Þjóðleikhússins. Þetta var tilkynnt ... Lesa »

Vorhátíð í Síðuskóla

Vorhátíð var haldin í dag í Síðuskóla. Fremur kalt var í veðri og var hátíðin að mestu haldin innandyra. Kennslustofur voru opnar og þar var til sýnis ýmislegt sem nemendur hafa ... Lesa »

Smíðuðu kerrur og ferðagrill

Nemendur sem ljúka námi í vor í stálsmíði settu á dögunum punktinn yfir i-ið í smíði á tveimur voldugum kerrum og einnig smíðaði hver nemandi ferðagrill. Smíðin er hluti af ... Lesa »

Að ala upp jafnréttissinnaðan dreng

Strákurinn minn verður 5 ára á þessu ári. Ég hef reynt eftir fremsta megni að ala hann upp sem jafnréttissinna. Einhverra hluta vegna er hann samt ægilegur gaur og leikur sér bara að ... Lesa »

Verkaskipting heimilanna

Hefur verkaskipting heimilanna farið batnandi á síðustu árum og áratugum? Ég tel svo vera. Fyrir mörgum árum síðan átti konan að vinna öll heimilisverkin. Karlinn átti bara að vinna ... Lesa »

Félagsfræðimessa í MA á miðvikudag

Stela strákar frekar hugbúnaði af netinu en stelpur? Finnst fólki almennt siðferðislega réttara að stela á netinu en í verslunum? Hvað er pot á Facebook? Eru meiri líkur á því að ... Lesa »

Takk fyrir okkur !

Við undirrituð, nýkjörnir þingmenn og varaþingmenn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðausturkjördæmi, þökkum kjósendum veittan stuðning og traust. Úrslitin, tæp 16% ... Lesa »

Afrek – barokktónleikar

Jan Dismas Zelenka (1679-1745) er tónskáld, sem ekki er ýkja kunnugt á meðal almennra unnenda klassískrar tónlistar. Þetta sætir nokkurri furðu, þar sem verk hans, þau þeirra, sem komið ... Lesa »

Harður árekstur varð við Leirubrú - vegurinn enn lokaður

Mjög harður árekstur varð á Leirubrú við Akureyri um kl. 17 í dag. Vegurinn er enn lokaður fyrir umferð en verður væntanlega opnaður mjög fljótlega að sögn lögreglu en mikil olía ... Lesa »

Flugmenn

Flugdólgur handtekinn við lendingu á Akureyrarflugvelli

Kona á fimmtugsaldri sem lét ófriðlega í flugi frá Reykjavík til Akureyrar í dag var handtekin við komu vélarinnar á Akureyrarflugvelli. Haft er eftir varðstjóra hjá lögreglunni á ... Lesa »

Vel heppnuð hópslysaæfing á Akureyrarflugvelli í dag

Um fjögur hundruð manns tóku þátt í flugslysaæfingu sem haldin var á Akureyrarflugvelli í dag. Æfingin byggir á flugslysaáætlun flugvallararins og þátttakendur frá öllum ... Lesa »

Norður á hjara veraldar!

Norðurhjari er klasi ferðaþjónustuaðila sem ná frá Kelduhverfi í vestri að Bakkafirði í austri. Markmið Norðurhjara er að efla ferðaþjónustu á svæðinu og bæta aðgengi ferðamanna ... Lesa »

Gospelkór Akureyrar heldur tónleika

Gospelkór Akureyrar ásamt hljómsveit ætlar að ljúka vetrinum og taka á móti sumrinu með tónleikum í Hofi, þriðjudaginn 7. maí klukkan 20:00. „Gospelkórinn sló í gegn fyrir jólin ... Lesa »

Súkkulaðikaka með rauðrófum

Rauðrófur gefa dásamlega mýkt og raka í þessa köku og stífþeyttar eggjahvítur gera að verkum að hún er létt og ljúffeng. Soðnar rauðrófur er hægt að kaupa í lofttæmdum umbúðum ... Lesa »

Kaldasti aprílmánuður á Akureyri síðan 1990

Aprílmánuður var kaldur á landinu og engin hlýindi eru í kortunum en vægu frosti er spáð alla næstu viku. Meðalhiti á Akureyri í apríl var -0,4 stig sem er 3,8 stigum undir meðallagi ... Lesa »

Lærði í kosningabaráttunni að karlar tala meir en konur

Brynhildur Pétursdóttir, ritstjóri hjá Neytendasamtökunum, hlaut nýjan starfsvettvang þegar nokkuð var liðið á sunndagsmorgun en þá kom í ljós að hún datt inn sem jöfnunarmaður í ... Lesa »

Nokkrir markaðir haldnir um helgina

Það hefur verið heilmikið líf í markaðshaldi Akureyringa og nágranna í vor og miklir möguleikar til að vera umhverfisvæn og kaupa notuð föt og annað til handagagns. Nú um helgina eru ... Lesa »

Gleráin rauð af litarmengun

Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd var Gleráin ekki kræsileg á að líta í hádeginu dag því rautt litarefni úr steypu frá Möl og sandi var skolað út í ána sem varð mjög rauðleit ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Last fá þeir sem búa svo um hnútana að hér verður á endanum hvergi hægt að aka um götur bæjarins án þess að eyðileggja ökutæki á hraðahindrunum, segir karl. Hann telur að áhersla ... Lesa »

Alþjóðlegt krullumót á Akureyri

Um helgina fer fram hið árlega alþjóðlega krullumót, Ice Cup, í Skautahöllinni á Akureyri. Þetta er í tíunda sinn sem mótið er haldið, en það er Krulludeild Skautafélags Akureyrar ... Lesa »

Frítt inn á söfnin

Hvorki fleiri né færri en 18 söfn og sýningar við Eyjafjörð opna dyr sínar fyrir gestum og gangandi laugardaginn 4. maí frá kl 13-17. Tilefnið er Eyfirski safnadagurinn sem nú er ... Lesa »

Nýr fjármálastjóri hjá MA

Ráðinn hefur verið nýr fjármálastjóri að Menntaskólanum á Akureyri. Marsilía Dröfn Sigurðardóttir hefur störf um mánaðamótin maí-júní. Marsilía hefur lokið BS-prófi frá úr ... Lesa »

Skoða meira