Stela strákar frekar hugbúnaði af netinu en stelpur? Finnst fólki almennt siðferðislega réttara að stela á netinu en í verslunum? Hvað er pot á Facebook? Eru meiri líkur á því að unglingar stundi ábyrgt kynlíf ef þeir hafa fengið góða kynfræðslu og bíða unglingar frekar með að stunda kynlíf ef þeir eru vel upplýstir? Hverjar eru væntingar grunnskólanema við val á framhaldsskóla? Er jafn mikill stuðningur og þrýstingur á bæði kynin að fara í nám tengt umönnunarstörfum? Eru tengsl milli áhorfs á sjónvarpsþætti og líkamsmyndar unglina?
Þessar spurningar eru meðal þess sem nemendur í Menntaskólanum á Akureyri hafa velt fyrir sér og munu leitast við að svara á Félagsfræðimessu sem haldin verður í MA miðvikudaginn 8. maí frá klukkan 14 - 17. Nánari útlistun á verkefnunum má lesa hér.
Nemendum, kennurum og öðum gestum er velkomið að líta inn og fylgjast með nemendum flytja verkefnin sín á meðan húsrúm leyfir en dagskráin fer fram í stofu G15 í Gamla skóla.
Á messunni kynna nemendur í FÉL403 fjölbreytt verkefni, sem þeir hafa unnið að og undirbúið að undanförnu. Þessi áfangi er kallaður aðferðafræði og í honum er unnin lítil rannsókn og skýrsla í framhaldinu.
Dagskráin er eftirfarandi:
14:00 Væntingar grunnskólanema um framhaldsskóla
14:15 Kynin og nám tengt umönnunarstörfum
- HLÉ
14:45 Tóbaksnotkun
15:00 Heiðarleiki og nethegðun
15:15 Faceboock og pot
- HLÉ
15:45 Kynfræðsla og kynhegðun
16:00 Landbúnaður - hvað er nú það?
16:15 Vöðvafíkn
16:30 Sjónvarp og líkamsmynd

