Lofa skal það sem vel er gert

Lofa skal það sem vel er gert
Ragnar Hólm

Ragnar Hólm

„Illgjarnir öfunda og hata; þannig sýna þeir aðdáun sína.“ Svo mælti franski rithöfundurinn Victor Hugo og augljóslega er í þessu fólginn sannleikur. Þeir sem á einhvern hátt skara fram úr og sýna yfirburðahæfni, eru gjarnan á milli tannanna á fólki.

Nú er Sjónlistastjórinn á Akureyri, áður forstöðumaður Listasafnsins, Hannes Sigurðsson, að láta af störfum. Hann var ráðinn hingað norður vorið 1999 til að stýra Listasafninu og setti snarlega upp sýningar sem vöktu mikið umtal, mikla aðdáun og stundum heift – sýningar sem vöktu þó alltaf athygli á bænum okkar innanlands og stundum út fyrir landsteinana.

Þegar Hannes er spurður að því hvers vegna í ósköpunum hann sé að hætta og flytja alfarið suður, núna þegar hann hefur ekki lokið samningstíma sínum sem Sjónlistastjóri, þá svarar hann að það sé flókið til lengdar að búa bæði í Reykjavík og á Akureyri og vinna á síðarnefnda staðnum.

Öllum má ljóst vera að þetta getur varla talist meginástæðan fyrir brotthvarfi Hannesar. Það hefur staðið styr um störf hans nánast frá upphafi og skyldi engan undra; honum er veitt athygli fyrir frábært starf sitt hjá Listasafninu á Akureyri en sú athygli er stundum blandin öfund og óvild.

„Skugginn er dýpstur þar sem ljósið skín skærast,“ sagði þýska skáldið Goethe. Ef litið er yfir afrekaskrá Hannesar Sigurðssonar hjá Listasafninu á Akureyri og síðar Sjónlistamiðstöðinni, ef skoðaður er listinn yfir sýningarnar, flett í umfjöllun blaðanna og ef til vill gluggað í talsvert viðamikla bókaútgáfu sem hefur loðað við starfsemina, þá hljóta menn að viðurkenna að í annan tíma hefur ljós listsýninga á Akureyri ekki skinið skærar. Eðli málsins samkvæmt hafa skuggarnir á sama tíma verið djúpir.

Þeir sem láta mikið að sér kveða og skara fram úr eru ekki alltaf einfaldir persónuleikar eða auðveldir í samskiptum. Það gustar gjarnan af Hannesi Sigurðssyni og þyturinn á það til að rugla hárið á þeim sem eiga leið hjá.

Hannes hefur stundum mætt öfund og jafnvel óvild en síður en svo alltaf hlotið það lof og þær þakkir sem hann á þó skilið fyrir störf sín í höfuðborg hins bjarta norðurs.

Lofa skal það sem vel er gert.

Ég virði Hannes Sigurðsson fyrir einstaka hæfileika sem hann er gæddur. Ég flyt honum mínar bestu óskir um bjarta framtíð og þakkir fyrir vel unnin störf í þágu Akureyringa síðustu 14 árin.

Takk, Hannes.

Ragnar Hólm
Höfundur er innfæddur Akureyringur og áhugasamur um myndlist og menningu.

_MG_0823

Hættutímar fara í hönd

Síðastliðið sumar dæmdi Héraðsdómur Norðurlands vestra tvo menn í skilorðsbundið fangelsi vegna manndráps af gáleysi eftir að vöruflutningabíll lenti í árekstri við annan bíl í Langadal með þeim ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Last fá þeir ökumenn sem ekki taka tillit til vatnsflaums á götum Akureyrar undanfarið, segir lesandi í bréfi. „Mikið er leiðinlegt að fá yfir sig gusur frá þeim bifreiðarstjórum sem ekki kunna sig. ... Lesa »

Það var glatt á hjalla þegar tímamótin fóru fram síðastliðinn föstudag.

Yngsti kúabóndinn ræsti nýja ostalínu MS á Akureyri

Formlega hefur verið tekin í notkun ný og fullkomin vinnslulína til ostagerðar hjá MS Akureyri. Áætlaður kostnaður við vinnslulínuna auk tengdra framkvæmda í húsnæði mjólkurstöðvarinnar, þ.m.t. 300 ... Lesa »

Kirkjukór Möðruvallaklaustursprestakalls flytur föstudagsfreistingar í dag

Föstudagsfreistingar í Akureyrarkirkju

Föstudagsfreistingar verða í Akureyrarkirkju í dag, 1. nóvember kl. 12:00 en þá mun Kirkjukór Möðruvallaklaustursprestakalls flytja tónlist við texta Davíðs Stefánssonar og Jónasar Hallgrímssonar. Á ... Lesa »

Hölli Vals

Hölli Vals á Græna hattinum

Dalvíkingurinn Hölli Vals snýr aftur heim eftir nokkurra ára tónleika hlé á Íslandi með Sýrublús og Hipparokk í anda Jimi Hendrix, Stevie Ray Vaughn, The Doors, Eric Clapton, BB King, Santana ofl. ... Lesa »

politikusar

Bæjarstjóri vill sveitarfélög inn í nýja samráðshópinn

„Þetta samkomulag gerir lítið annað en að fresta ákvörðun um málið. Menn hafa líklega ekki treyst sér til að afgreiða málið í andstöðu við meirihluta borgarbúa,“ segir Eiríkur Björn Björgvinsson, ... Lesa »

Ragnar Hólm

Lofa skal það sem vel er gert

„Illgjarnir öfunda og hata; þannig sýna þeir aðdáun sína.“ Svo mælti franski rithöfundurinn Victor Hugo og augljóslega er í þessu fólginn sannleikur. Þeir sem á einhvern hátt skara fram úr og sýna ... Lesa »

Jón Óðinn Waage

Rós

Þegar ég var 18 ára menntaskólanemi þá fór ég sumarlangt í fiskvinnu austur á fjörðum. Konurnar í frystihúsinu voru oft harðar við okkar strákana, ráku á eftir okkur miskunnarlaust ef við vorum ekki ... Lesa »

Undirritun samningsins í Glerárkirkju í síðustu viku. Birna Vilbergsdóttir fulltrúi Hjálpræðishersins á Akureyri, Vilborg Oddsdóttir hjá Hjálparstarfi kirkjunnar, Sigurveig S. Bergsteinsdóttir f.h. Mæðrastyrksnefndar Akureyrar og Hafsteinn Jakobsson f.h. Rauða krossins.

Samstarf um jólaaðstoð á Eyjafjarðarsvæðinu

Skrifað hefur verið undir samstarfssamning um jólaaðstoð á Eyjafjarðarsvæðinu. Fern samtök munu vinna saman í ár að þessu verkefni. Þau eru: Hjálpræðisherinn á Akureyri, Hjálparstarf kirkjunnar, ... Lesa »

Mikið fjölmenni sótti málþing á Hótel KEA á kvennafrídeginum.

Betra að vera strákastelpa en stelpustrákur

Kvennafrídagsins var minnst með ýmsum hætti sl. fimmtudag. Fjölmargir fyrirlesarar fluttu erindi á fundi Jafnréttisstofu og Akureyrarbæjar og vakti margt athygli. Boðað var til fundarins undir ... Lesa »

Naglar stóðu út úr höndum Lenu Margrétar. Mynd af Facebooksíðu Lenu Margrétar

FSA harmar tilvik sem olli ama siglfirskrar konu

Sigurður E. Sigurðsson, framkvæmdastjóri lækninga og handlækningasviðs, Sjúkrahúsinu á Akureyri, segir að stofnunin harmi öll tilvik þar sem notendur læknaþjónustu kunni að hafa fengið óskýra ... Lesa »

Stúdentar við Háskólann á Akureyri. Mynd af vef FSHA

Atvinnumöguleikar stúdenta ræddir

Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania, Gunnar Haugen, framkvæmdastjóri Capacent ráðninga og Guðrún Geirsdóttir, bologna sérfræðingur um gæðamál háskóla verða meðal frummælenda á málþingi um ... Lesa »

Steingrímur á Norðurpólnum

Frásögn af för minni og ólympíueldsins á Norðurpólinn

Á morgun, föstudaginn 1. nóvember, kl. 12:35 í stofu M102 á Sólborg mun Dr. Steingrímur Jónsson flytja erindið sitt: Frásögn af för minni og ólympíueldsins á Norðurpólinn. Steingrímur hélt nýverið ... Lesa »

Fjörutíu til fimmtíu starfsmenn vinna þessa dagana hörðum höndum í því skyni að Norðlendingar sjái ljósið við enda ganganna áður en yfir lýkur.

Jarðgöng ekki fyrir hvern sem er

Valgeir Bergmann, framkvæmda­stjóri Vaðlaheiðarganga, segir að jarðgangavinna sé ekki fyrir hvern sem er. 40-50 manns starfa nú við samgöngubótina en starfið sé hvorki laust við áhættu né óþægindi. ... Lesa »

Þessa mynd tók lögreglan á Akureyri í morgun

Mikill snjór á götum

Mikið hefur snjóað á Akureyri í gærkvöldi og nótt og eru ökumenn beðnir um að hreinsa vel snjó af bílum áður en lagt er af stað. Snjómokstur hófst mjög snemma í morgun og ekki ættu að vera vandræði ... Lesa »

Stefán B. Sigurðsson, rektor Háskólans á Akureyri

Sigrún hæfust og reglum fylgt segir rektor

Stefán B. Sigurðsson, rektor Háskólans á Akureyri, hafnar því að góðri stjórnsýslu hafi verið ábótavant þegar skipað var í stöðu deildarsforseta hjá skólanum á dögunum. „ Hvað varðar ferlið við ... Lesa »

unak

HA hafi ekkert fræðilegt gildi?

Stefán B. Sigurðsson, rektor Háskólans á Akureyri, hefur ekki svarað fyrirspurn Akureyrar vikublaðs um þá gagnrýni sem komið hefur fram í kjölfar skipunar forseta Hug- og félagsvísindasviðs skólans. ... Lesa »

Björn Þorláksson

Ráðist að rótum fátæktar

Akureyri er gott samfélag – líkt og önnur samfélög hér á landi. „Vor Akureyri er öllum meiri, með útgerð, dráttarbraut og Sjallans paradís. Við höfum Lindu, við höfum KEA og heilsudrykkinn Thule, ... Lesa »

Silja Björk

Þú skuldar!

Fyrir unga og upprennandi framakonu eins og mig ætti það nú að vera lítið mál að henda sér í sitt fínasta, skella sér út á lífið og hitta þar álíka upprennandi ungan mann, eiga við hann gott spjall og ... Lesa »

Gönguskíðabrautin verður opnuð í dag. Mynd úr safni, Auðunn Níelsson

Gönguskíðabrautin í Hlíðarfjalli opnuð í dag

Gönguskíðabrautin í Hlíðarfjalli, hin svokallaða Vetrarbraut, verður formlega opnuð seinnipartinn í dag. Bæjarbúar urðu vitni að því í gærkvöldi að flóðljósin við brautina voru tendruð en þá var verið ... Lesa »

Lögreglubíll. Mynd úr safni

Mikil hálka á götum

Mikil hálka er nú á götum Akureyrar og hafa tvö umferðaróhöpp orðið nú eftir hádegið vegna hálku. Árekstur varð milli vörubíls og fólksbíls á mótum Glerárgötu og Tryggvabrautar/Dalsbrautar, bílstjóri ... Lesa »

Þau eru margþætt störfin á öldrunarheimilum. Mynd úr safni

24 á biðlista eftir hjúkrunarrými

Á Akureyri hefur fólki á biðlista eftir hjúkrunarrýmum á öldrunarheimilum fjölgað en biðlisti eftir dvalarrýmum er nú mun styttri en fyrr á árinu. Samanlagður fjöldi á biðlista eftir hjúkrunar- eða ... Lesa »

Halldóra Eydís

Hannar skó sem minna á fegurð náttúrunnar

Halldóra Eydís Jónsdóttir skóhönnuður heldur fyrirlestur í Verkmenntaskólanum á Akureyri föstudaginn 1. nóvember kl. 15. Fyrirlesturinn fer fram í stofu M01. Halldóra Eydís, er fædd og uppalin í ... Lesa »

Heilög Barbara, verndardýrlingur námu- og gangnagerðarmanna

Göngin að ná kílómetra undir verndarvæng dýrlings

Vaðlaheiðargöngin eru nú við það að ná eins kílómeters lengd og reiknað er með að það markmið náist í vikunni. Líkneski heilagrar Barböru hefur verið komið upp við gangamunna en heilög Barbara er ... Lesa »

Nemendur í Myndlistarskólanum á Akureyri

Fjórtán sinnum fjölfeldi

Laugardaginn 2. nóvember kl. 14.00 opna fjórtán nemendur af Fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri sýningu í Populus tremula. Nemendurnir sýna afrakstur áfanga undir handleiðslu Hlyns Hallssonar ... Lesa »

Skoða meira