„Þetta samkomulag gerir lítið annað en að fresta ákvörðun um málið. Menn hafa líklega ekki treyst sér til að afgreiða málið í andstöðu við meirihluta borgarbúa,“ segir Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri vegna millilendingar um framtíð Reykjavíkurflugvallar.
Hann segist telja mikilvægt að nýta tímann vel og gæta þess að ekki verði til enn ein skýrslan sem ágreiningur verði síðan um. „Ég vil sjá fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga í samráðshópnum enda hafa fjölmargar bæjar- og sveitarstjórnir haft skoðun á málinu og áhrif á feril þess þ.m.t. bæjarstjórn Akureyrar sem hefur unnið ötullega í þessu máli allt þetta kjörtímabil. Undirskriftalistinn hefur örugglega líka haft sín áhrif,“ segir Eiríkur og vísar til Hjartans í Vatnsmýrinni. Þá segir bæjarstjóri: „Ég hefði viljað sjá í samkomulaginu úrbætur strax í aðstöðu fyrir starfsfólk flugvallarins og flugfarþega.“
Njáll Trausti Friðbertsson, annar tveggja talsmanna Hjartans í Vatnsmýrinni, segist telja að fjölmennasta undirskriftasöfnun á Íslandi sem varði íslenskt málefni hafi haft mikil áhrif á þróun þessa máls. Áður var reiknað með að einungis ein flugbraut yrði í Vatnsmýrinni eftir 2016. Nú hafi líftími norður-suður brautarinnar a.m.k verið lengdur til 2022 og skipuð nefnd undir forsæti Rögnu Árnadóttir sem fær rúmt ár til að skoða hvaða kostir fyrir flugvallarstæði eru í stöðunni til framtíðar. „Það er okkar skilningur að ekki verði ráðist í neinar þær framkvæmdir sem geta hamlað þróun Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýrinni á þeim tíma sem nefndin starfar. Einnig að flugvöllurinn verði til framtíðar í Vatnsmýrinni nema að það komi til nýtt jafngott flugvallarstæði á höfuðborgarsvæðinu.“
Hins vegar sé ljóst að talsverð vinna fari fram áður en endaleg niðurstaða fæst í málið. „Tímaramminn til að ná utan um málið er stuttur þannig að hér þarf að vinna hratt og vel og ljóst að mikilvæg vinna þarf að fara fram í Reykjavík á næsta kjörtímabili þar sem ljóst er að stórar ákvarðanir verða teknar.“
Andrea Hálmsdóttir, bæjarfulltrúi VG á Akureyri, segir að samkomulagið hljóti að teljast áfangasigur fyrir flugsamgöngur milli höfuðborgarinnar og landsbyggðanna og því beri að fagna.
„Með samkomulaginu er mikilvægi flugvallar í höfuðborginni viðurkennt með afgerandi hætti og við hljótum að binda miklar vonir við að störf þeirrar nefndar sem á að skipa skili farsælli niðurstöðu fyrir alla landsmenn og taki tillit til byggðaþróunar og sérstöðu landsbyggðanna,“ segir Andrea.
Ólafur Jónsson, fulltrúi sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Akureyri segir: „Þetta er áfangasigur og eyðir í bili þeirri óvissu sem ríkti um framhald málsins. Sú óvissa var mjög íþyngjandi fyrir landsbyggðina og flugrekstraraðila. Nú er mikilvægt að sú nefnd sem falið var að kanna möguleikana á öðru flugvallarstæði innan bæjarmarka höfuðborgarinnar vinni hratt og örugglega. Það er nauðsynlegt að fá niðurstöðu sem fyrst því átta ár eru ekki langur tími þegar svona stórt mál er undir. Hér þarf að horfa til margra hluta s.s. bættrar aðstöðu og endurnýjun flugvéla. Allt stórar ákvarðanir sem þurfa ákveðinn undirbúning.“
„Ég nefndi í umræðu í bæjarstjórn, sem ég hafði óskað eftir um stöðu Reykjavíkurflugvallar, að ég óttaðist að framtíð Reykjavíkurflugvallar yrði að stóru kosningamáli í höfuðborginni í vor. Nú hefur því verið afstýrt og gefst vonandi andrými til að skoða málið að nýju ofan í kjölinn,“ segir Ólafur.
-BÞ





























