Tvær stúlkur sátu fastar á Öxnadalsheiðinni frá fjögur í nótt, þangað til vegagerðin náði að opna heiðina. Heiðin var skráð ófær í nótt.
Ekkert amaði að súlkunum, komust þær hvorki lönd né strönd uppi á heiði og þurftu því að bíða í rólegheitunum eftir starfsmönnum Vegagerðarinnar til að ná þeim niður af heiðinni. Vindhraði á heiðinni er um 15m á sekúndu og skafrenningur og þæfingsfærð á heiðinni núna.
Vegagerðin opnaði veginn nú í morgunsárið. Veðurstofan spáir norðaustan 10-18 m/s, en 18-23 SA-lands fram eftir degi. Slydda eða snjókoma með köflum A-til og stöku él NV-til, en annars úrkomulítið.
























