Last fá norðlenskir fjölmiðlar en engir þeirra greindu frá eða voru viðstaddir þegar Sjúkrasjóður Verkstjórasambands Ísland afhenti FSA stóra gjöf í formi sérstaks rúms. Afhendingin fór fram meðan þing Verkstjórasamband Íslands stóð yfir á Akureyri 23.-25. Maí sl. Svo segir í pósti sem barst blaðinu.
Lof fá ábúendur á Ytri Tjörnum í Eyjafirði, segir sendandi. Þeir buðu stórum sem smáum síðasa laugardag að koma og fylgjast með því þegar kúnum var hleypt út í fyrsta skipti í sumar. Ekki nóg með að okkur var boðið að fylgjast með því ævintýri öllu heldur var líka boðið upp á dýrindis kleinur, djús og kókómjólk,“ skrifar sendandi.
Last fær konan sem er með tvo risastóra hunda lausa í kirkjugarðinum á Akureyri nánast alla morgna á milli 7 og 7:30, þrátt fyrir að rækilega sé merkt að hundar megi ekki koma inn í kirkjugarðinn. Þetta skrifar kona sem sendi blaðinu bréf. „Í fyrsta lagi er bannað að vera með hunda þarna. Í öðru lagi er lausaganga hunda bönnuð í þéttbýli og í þriðja lagi þá er það ekki falleg tilhugsun hvað hundar geta gert innan um leiði, krossa og svo framvegis,“ segir konan.
Lof vikunnar fær Akureyri vikublað eða jafnvel lof ársins fyrir skemmtilegt blað sem, stingur á ýmsum kaunum í bænum okkar. Svo skrifar dyggur lesandi sem sendi blaðinu póst. Með því að birta lofið verður blaðið eflaust sakað um sjálfshælni en Lof og last er vettvangur ólíkra radda og birtir last um blaðið sem aðra – eða lof. Svo fremi sem ekki stefni siðlegum eða lagalegum gildum í hættu…
Last fær verslunin Samkaup-Úrval Hrísalundi á Akureyri fyrir að hætta að hafa til sölu á vorin svartfuglsegg eins og búðin var alltaf með, a.m.k. þangað til í fyrra. Svo ritar lesandi blaðinu. „Nú er sagt í blöðum að góð eggjataka sé t.d. í Grímsey. Í búðinni kannast enginn lengur við nein svartfuglsegg. Spyrja má hverju þetta sæti,“ skrifar maðurinn…

