Sumarblíðan á landinu virðist engan endi ætla að taka og landsmenn allir flykkjast nú í sundlaugar og aðra útivistarstaði til að njóta veðurblíðunnar. Það er þó ástæða til að vara við of mikilli sólardýrkun því þessa dagana er ósonlagið þynnra en oft áður og því enn meiri ástæða til að hafa varan á fyrir sólbruna
Svokallað UV (ultra violet) eða ÚF (útfjólublátt) gildi mældist yfir 5 á Íslandi klukkan 12:30 í dag en þetta er fjórði dagurinn í röð sem gildið fer svo hátt upp.
Ástæða þess að gildið fer svo óvenjulega hátt upp er sú að ósonlagið yfir Íslandi er heldur undir meðaþykkt þessa dagna ásamt því að himininn er heiðskýr og loftið tært. Allt þetta samanlagt gerir það að verkum að sólin hefur mun meiri áhrif á húðina en mörg okkar halda.
Það er þó ekki um neina sérstaka þynningu á ósonlaginu að ræða núna því sveiflur eru eðlilegar en á myndinni hér fyrir neðan má sjá kort sem sýnir þéttni ósonlagsins. Það má í raun hugsa sér að ósonlagið sé ósýnilegt ský, stundum þykknar og stundum þynnist það og hreyfist til. En yfir Íslandi þessa dagana er það þynnra en í meðallagi, sem er um 375 stig.
Á vef húðlæknarstöðvarinnar má sjá töflu yfir UV/ÚF gildi hvers dags og í dag kemur fram að hæsta gildi sé yfir fimm sem er óvenju hátt á þessum árstíma þó það sé ekki einsdæmi. En þegar gildið fer svona hátt er ekki ráðlegt að vera úti í sólinni án góðrar sólarvarnar lengur en 60 mínútur og ekki lengur en 25 mínútur ef húðin er viðkvæm.
Það er þó fleira sem getur breytt því hversu mikil áhrif geislar sólarinnar hafa á okkur. Til dæmis aukast áhrifin ef þeir endurkastast af vatni, snjó, hvítum vegg eða glugga. Þá erum við að fá sólina beint á okkur og að auki endurkast frá umhverfinu. Einnig eru áhrifin meiri eftir því sem við erum hærra stödd yfir sjávarmáli.
Það er sérstaklega mikilvægt að verja börn og ungt fólk vel fyrir sólinni vegna þess að eftir því sem aldurinn færist yfir hefur líkaminn framleitt meira af litafrumum, sem eru okkar náttúrulega vörn gegn sólinni. En börn og ungmenni eiga eftir að byggja þessa vörn upp.
Samkvæmt spám veðurstofunnar mun varla sjá ský á himni á Norðurlandinu fyrr en eftir næstu helgi. Svo það er um að gera að birgja sig upp af sólarvörn og njóta sumarblíðunnar.






