Þá er vetrarveðrið skollið á aftur eftir mikinn hlýindakafla. Veðurstofan varar við norðan og norðaustan hvassviðri eða stormi (15-25 m/s) víða um land a.m.k. fram á kvöld.
Á Norðurlandi vestra er ófært á Þverárfjalli, Vatnsskarði og Siglufjarðarvegi. Þæfingur er annars víða eða hálka ásamt stórhríð eða skafrenning.
Norðaustanlands er ófært um Ólafsfjarðarmúla, Víkurskarð og á Grenivíkurvegi. Hálka eða snjóþekja er á öðrum leiðum og víða er stórhríð.
Vegfarendur eru varaðir við skemmdum á klæðningu (slitlagi) á Þverárfjallsvegi, 744





























