Tímamót og tækifæri

Tímamót og tækifæri

Á dögunum urðu nokkur tímamót í mínu pólitíska lífi þegar ég eftir 14 ára samfellda formennsku í Vinstrihreyfingunni grænu framboði lét af því embætti og Katrín Jakobsdóttir tók við keflinu. Það er mér sérstök ánægja að við starfinu skuli taka einn glæsilegasti fulltrúi yngri kynslóðar sem fram hefur komið lengi í stjórnmálum landsins. Í Katrínu sameinast ungur aldur og mikil reynsla en hún hefur gengt varaformennsku í VG í tæp 10 ár og nú ráðherraembætti með mjög farsælum hætti í á fimmta ár. Katrín sýnir kjark og áræðni með þeirri ákvörðun sinni að stíga inn í forustusveit íslenskra stjórnmála, ung kona og þriggja barna móðir, á erfiðum tímum og vitandi vel að pólitík er ekki auðveldur starfsvettvangur um þessar mundir. Með því gerist hún glæsileg fyrirmynd kynsystra sinna, jafnaldra og allra sem bjóða fram krafta sína í þjónustu fyrir samfélagið.

En, lesendur góðir, ég held áfram í stjórnmálum, glaðbeittur sem aldrei fyrr og auknu frelsi feginn. Ég skipa 1. sætið á lista VG fyrir alþingiskosningarnar í vor hér í kjördæminu, verð áfram atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra og hef fullan hug á þátttöku í ríkisstjórn á næsta kjörtímabili, verði til þess aðstæður. Ég hlakka til að fá aðeins frjálsari hendur til að sinna ekki síst kjördæminu sem ég hef þjónað í heild eða að hluta í 30 ár sem þingmaður eða þingmaður og ráðherra á víxl.

Norðfjarðar- og Vaðlaheiðargöng

Nú eru spennandi tímar framundan í Norðausturkjördæmi. Framkvæmdir eru að hefjast við tvenn jarðgöng sem bæði marka mikil tímamót. Ný Norðfjarðargöng eru löngu tímabær og verða mikil lyftistöng fyrir Norðfjörð, sveitarfélagið Fjarðabyggð og raunar allt Austurland. Lykilstofnanir fyrir fjórðunginn sem staðsettar eru á Norðfirði sem og gríðarmikil umsvif á staðnum með tilheyrandi flutningum gera þessa framkvæmd eina af hinum brýnustu í samgöngukerfi landsins frá sjónarhóli allt í senn öryggis, þjóðhagslegar hagkvæmni og byggðafestu.

Þá er gerð Vaðlaheiðarganga gríðarlega mikilvæg samgöngu- og byggðaaðgerð að mínu mati. Með þeim renna Eyjafjarðarsvæðið og vestanverðar Þingeyjarsýslur meira og minna saman í eitt atvinnu-, þjónustu- og samskiptasvæði. Öryggi í samgöngum milli Norðurlands og Austfjarða vex til muna og til verður öflugri mótvægisöxull við Suðvesturhornið.
Líkt og annars staðar á landinu hefur mikill vöxtur einkennt ferðaþjónustuna víða í kjördæminu. Líflegt er víða yfir sumartímann eins og glöggt má sjá á Húsavík, Siglufirði, Mývatni, Akureyri, á Héraði, Borgarfirði eystra og víðar. Vetrarferðamennska er einnig að aukist og víða sóknarfæri til staðar utan háannar. Nýlega var ákveðið að stórauka framlög til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða í tengslum við fjárfestingaráætlun ríkisstjórnarinnar, bæði til að bæta við nýjum áfangastöðum ferðamanna og úrbóta á hinum sem þegar eru fjölsóttir. Ég vona að kjördæmið beri sig eftir björginni og menn sæki í þennan sjóð á komandi mánuðum og misserum.

Kísilver í undirbúningi á Bakka

Stjórnvöld hafa að undanförnu ásamt sveitarfélaginu Norðurþingi átt í viðræðum við þýska iðnfyrirtækið PCC um uppbyggingu kísilvers í landi Bakka við Húsavík. Þær viðræður hafa gengið ágætlega og skrifað hefur verið undir viljayfirlýsingu um uppbyggingu innviða og ívilnanir. PCC vinnur nú að lokaundirbúningi vegna verkefnisins. Þarna er um að ræða meðalstórt iðnaðarverkefni sem mun nota í fyrri áfanga rúm 50 MW af endurnýjanlegri orku frá háhitasvæðum í Þingeyjarsýslum, um 120 varanleg störf verða til og um 400 störf á byggingartíma. Mikilvægt er að ná samningum við fyrsta fyrirtækið á Bakka. Eftirleikurinn verður auðveldari þegar fjárfest hefur verið í nauðsynlegum innviðum og fyrsta fyrirtækið er búið að brjóta ísinn, þá er kominn nýr staðsetningarvalkostur fyrir frekari iðnaðaruppbyggingu í landinu með orku Þingeyjarsýslna í bakgarðinum .

Bjart framundan

Steingrímur J. Sigfússon

Atvinnuástand hefur farið batnandi og reyndar verið mun betra á landsbyggðinni en á suðvesturhorninu allt frá hruni. Myndarleg uppbygging og mikil umsvif tengjast sterkri stöðu Norðausturhornsins, þ.e. Þórshafnar og Vopnafjarðar og svo Austfjarða í uppsjávarveiðum og vinnslu og við Eyjafjörð eru öflugustu bolfiskvinnsluhús landsins. Árstíðarsveifla í uppsjávargreininni hefur minnkað eftir tilkomu makríls á Íslandsmið sem hefur reynst kærkomin búbót. Því miður er þó atvinnuástandið á nokkrum stöðum lakara og tilteknar byggðir eins og Raufarhöfn eiga í alvarlegum vanda. Ný aðferðafræði Byggðastofnunar og náin samvinna með íbúum, eins og velheppnað íbúaþing á dögunum var til marks um, vekur þó vonir um að hægt sé að snúa við þróuninni þar eins og annars staðar þar sem við bráðavanda er að glíma.
Ég er almennt bjartsýnn á framtíðina á Norður- og Austurlandi og hef fulla trú á að þar muni verða eitt helsta hagvaxtar- og uppbyggingarsvæði landsins á næstu árum. Lykillinn að farsælli búsetuþróun er fjölbreytni í atvinnumálum. Nú á árunum eftir hrun hefur margt þróast í þá átt víða um land. Undirstöðuatvinnuvegirnir, sjávarútvegur, landbúnaður og ferðaþjónusta, verða áfram mikilvægir fyrir kjördæmið á komandi árum, en aukin fjölbreytni þarf að koma til, m.a. gegnum sóknaráætlanir landshluta, fjárfestingaráætlun, stuðning við skapandi greinar og stóraukið fjármagn í tækniþróunar- og rannsóknarsjóði. Loks má nefna stöðu og möguleika Akureyrar sem miðstöðvar Norðurslóðamála á Íslandi, þjónustu við olíu- og gasleit, mikla möguleika landbúnaðar- og matvælaiðnaðar og þannig mætti áfram telja.

Steingrímur J. Sigfússon
Höfundur er 1. þingmaður Norðaustur-kjördæmis og atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra.

kammer

Slagharpan og sönglúðurinn

Í kvöld kl. 20 fara fram í Hofi kammertónleikar þar sem hljóðfæraleikarar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, Helgi Þorbjörn Svavarsson og Helena Guðlaug Bjarnadóttir koma ... Lesa »

Sláturhús KEA á Oddeyrartanga, nú Norðlenska

Hús vikunnar: Sláturhús KEA á Oddeyrartanga

Sjálfsagt eru fáir sem tengja iðnaðarhverfi við sögufrægar eða merkar og glæsilegar byggingar. En það vill nú svo til að í rótgrónum iðnaðarhverfunum leynast oftar en ekki miklar ... Lesa »

nama1

Óhapp í Námaskarði ekki vegna kæruleysis

Í morgun um kl. 10 var vegurinn um Námaskarð opnaður og hafði þá verið lokaður í sólarhring. Ástæða lokunarinnar var sú að flutningabíll með tengivagn hafði lent þversum á veginum ... Lesa »

siminn copy

Síminn biður Sauðkrækinga afsökunar

„Afskaplega væri nú gott að geta hlegið að öllum mistökum lífsins. Sumum má strax hlæja að. Öðrum eftir á. Enn önnur verða bara ekki fyndin. Þau eru og verða neyðarleg. Þannig ... Lesa »

Lýtaaðgerðir. Mynd úr myndabanka

Hvers vegna fara konur í lýtaaðgerðir?

Föstudaginn 8. mars munu Zontaklúbbarnir á Akureyri í samstarfi við Jafnréttisstofu, FSA, Akureyrarbæ, Íslandsbanka, Landsbankann og Sparisjóð Höfðhverfinga boða til hádegisfundar á ... Lesa »

Vinalegt gamalt fólk á Öldrunarheimilum Akureyrar. Mynd af vef Akureyrarbæjar

Hræðast karlar gamalt fólk?

Á Öldrunarheimilum Akureyrar (ÖA) starfa einungis níu karlar við umönnun í tæplega sex stöðugildum og eru konur því um 97% starfsmannahópsins. Í von um að hægt verði að leiðrétta ... Lesa »

Frá kynningarfundi Evrópustofu á Hótel KEA í febrúar

Reynsla Svía af landbúnaðarstefnu ESB

Karl Erik Olsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra Svíþjóðar fjallar um reynslu Svía af landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins og þátttöku í Evrópuþinginu á opnum fundi á Hótel KEA, ... Lesa »

Arna Valsdóttir. Mynd af vef VMA

Ekki athyglisbrestur heldur víðhygli

Fyrir um áratug setti Arna Valsdóttir, kennari og brautarstjóri listnámsbrautar VMA, fram hugtakið „víðhygli“ sem hún taldi og telur enn að eigi mun betur við um fjölmarga þá ... Lesa »

Mynd: Daníel Starrason

Færi getur verið erfitt innanbæjar

Starfsmenn Akureyrarbæjar vinna nú við að hreinsa götur í bænum. Víða hefur skafið í skafla og getur því verið erfitt fyrir minni bíla að komast leiðar sinnar en annarsstaðar er vel ... Lesa »

5. þreps liðin á Bikarmóti í áhaldafimleikum. Mynd af vef FIMAK

Gott gengi FIMAK um helgina

Um helgina fór fram Íslandsmót unglinga í hópfimleikum. Mótið var haldið hjá Stjörnunni í Garðabæ og sendi Fimleikafélag Akureyrar fjögur lið til keppni. Tvö liðanna kepptu í 2. ... Lesa »

Þessa mynd tók Margrét Elfa Jónsdóttir af hjólum á Akureyri í dag. Aðeins hörðustu naglar ferðast um á slíkum fákum í svona veðri

Aðstoðuðu hjólreiðamann í Langadal í morgun

Lögreglan á Blönduósi kom þýskum hjólreiðamann til aðstoðar í Langadal í morgun en skólabílstjóri hafði komið auga á manninn á ferð sinni um dalinn og tilkynnt til lögreglu. Sagt ... Lesa »

Sauðkrækingar segjast ekki vera kræklingar. Mynd: Helga Kvam, allskonar.is

Króksarar ekki sáttir við að vera kallaðir kræklingar

Sauðkrækingar eru ekki ánægðir með að í dreifibréfi sem í morgun kom inn um bréfalúgur frá Símanum er ávarpið: Kæri Sauðkræklingur. Hafa margir kvartað yfir þessu í dag og vilja ... Lesa »

eyrarrosin

Eyrarrósin verður afhent í Hofi

Eyrarrósin, viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar, verður veitt í níunda sinn þriðjudaginn 12. mars næstkomandi. Í ár verður ... Lesa »

Í éljagangi og skafrenningi síðdegis 4. mars 2013. Mynd: Þórgnýr Dýrfjörð

Munið að hreinsa snjó af bílljósunum

„Nú er stórhríð í umdæminu og skyggni lítið. Ekkert ferðaveður er á vegum og færð víða farin að spillast í þéttbýli, sérstaklega í úthverfum. Til þeirra sem þó eru og ... Lesa »

Sundlaugin á Akureyri

Dýrt í sund á Akureyri

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verðbreytingar á gjaldskrám sundstaða hjá 15 stærstu sveitarfélögum landsins frá 1. janúar 2012. til 1. janúar 2013. Tólf sveitarfélög hafa hækkað ... Lesa »

snjorvegur

Færð tekin að spillast innanbæjar á Akureyri

Færð er nú tekin að spillast innanbæjar á Akureyri og ekki lítur út fyrir að neitt lát verði á úrkomuni í dag. Starfsmenn Akureyrarbæjar vinna nú við að moka helstu leiðir. Á ... Lesa »

Við afhendingu verðlaunanna. Mynd: Hörður Kristjánsson bbl.is

Handverkskonur milli heiða verðlaunaðar

Landbúnaðarverðlaunin 2013 voru veitt nú við setningu búnaðarþings í gær, sunnudaginn 4. mars. Verðlaunin hlutu bændur í Laxárdal II og handverkshópurinn Handverkskonur milli heiða en ... Lesa »

Harvey Siegel

Hvað er gagnrýnin hugsun? Af hverju er hún mikilvæg?

Hvað er gagnrýnin hugsun? Af hverju er hún mikilvæg? Þetta eru spurningar sem Harvey Siegel prófessor við Háskólann í Miami veltir upp í fyrirlestri sem haldinn verður við Háskólann á ... Lesa »

Mynd sem Linda Ólafsdóttir tók fyrr í veturMynd: Linda Ólafsdóttir

Veður og ófærð

Þá er vetrarveðrið skollið á aftur eftir mikinn hlýindakafla. Veðurstofan varar við norðan og norðaustan hvassviðri eða stormi (15-25 m/s) víða um land a.m.k. fram á kvöld. Á ... Lesa »

Kristín Einarsdóttir

Má bjóða þér far?

„Má bjóða þér far?” Spurði mig kona. Ég á ekki bíl og þarf því að reiða mig á tvo jafnfljóta, strætó eða “Svörtu þrumuna” sem er hjólið mitt . Ég bý á Akureyri og ... Lesa »

Arndís Bergsdóttir

Að kúra með tígrisdýri

Um daginn sat ég með kaffibolla og renndi hugsunarlaust yfir Fésbókina. Augun staðnæmdust við mynd af gamalli konu og í flæðinu sem skapast milli svefns og nægrar koffeininntöku renndi ég ... Lesa »

Candle

12 ára drengur lést í bílslysinu í Skagafirði

Drengurinn sem lést í bílveltu við bæinn Egilsá í Norðurárdal í Skagafirði í fyrradag hét Blængur Mikael Bogason og var nýorðinn tólf ára. Hann var farþegi í jeppa sem lenti út af ... Lesa »

Steingrímur J. Sigfússon

Tímamót og tækifæri

Á dögunum urðu nokkur tímamót í mínu pólitíska lífi þegar ég eftir 14 ára samfellda formennsku í Vinstrihreyfingunni grænu framboði lét af því embætti og Katrín Jakobsdóttir tók ... Lesa »

Vífill Karlsson lektor flutti erindi sitt á Akureyri.

Stærðarhagkvæmni er ekki sjálfgefin

Ef tvö stór sveitarfélög sameinast getur skapast togstreita um þjónustu og jafnvel þensla sem verður til þess að éta hagræðingu á öðrum sviðum upp. Þetta kom fram í umræðum um ... Lesa »

Hermann Óskarsson

Fann manntalið á öskuhaugunum

Út er komin bókin Félagsgerð Akureyrar 1785-2000: Upphaf og þróun þéttbýlis, stéttaskiptingar, stjórnmála og atvinnulíf eftir Hermann Óskarsson dósent við Háskólann á Akureyri. ... Lesa »

Skoða meira