Kínverjar leita nú leiða til að fá áratuga aðgang að jörð í Reykjadal vegna norðurljósarannsókna. Samkvæmt heimildum blaðsins er til skoðunar að stofnað verði félag um málið með Arctic Portal, Eyþingi og Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga.
Ef af stofnun félagsins verður myndi það kaupa jörðina Kárhól í Reykjadal og leigja hana Kínverjum til langs tíma ekki ósvipað og á Grímsstöðum á Fjöllum. Eftir því sem heimildir blaðsins herma vilja Kínverjar njóta aðgangs að jörðinni að lágmarki 33 ár. Kárhóll var auglýstur til sölu á dögunum en er ekki á söluskrá sem stendur. Heimamenn eru missáttir með framtíðaráformin, m.a. vegna þess að Kínverjar hyggjast byggja upp fjölda húsa auk þeirra sem fyrir eru. Hermt er að þeir hyggist stunda fleiri rannsóknir en bara norðurljósarannsóknir.
Rætt hefur verið um að Háskóli Íslands og Veðurstofan taki einnig þátt í verkefninu, auk Háskólans á Akureyri. Gestastofa yrði opnuð með upplýsingum um norðurljós ofl. Hún yrði opin öllum ferðamönnum. Kínverjarnir vildu fyrst aðkomu opinberra stofnana við kaup á jörðinni, en enginn vildi ganga þar fram fyrir skjöldu, enda samræmist slíkt varla íslenskum lögum. Af þeim sökum eru atvinnuþróunarfélögin sögð í þessu sem og Halldór Jóhannesson fyrir hönd Arctic Portal. Halldór er lykilmaður í samningunum við Huang Nubo.
Samkvæmt heimildum blaðsins vilja Kínverjarnir hefja starfsemi strax í haust. Þeir vilja keyra málið í gegn. Stjórnvöld, ekki síst utanríkisráðuneytið, hafa krafist meiri upplýsinga og hafa spyrnt við fótum samkvæmt heimildum blaðsins.






























