Árshátíð MA, ein stærsta vímulausa hátíð sem haldin er árlega á Íslandi, fer í kvöld í Íþróttahöllinni á Akureyri. Undirbúningur er í höndum nemendra sjálfra og tekur nokkrar vikur að sögn Bjarna Karlssonar, formanns skólafélagsins. Tugir nemenda vinna að skreytingum og margir hópar nemenda semja og æfa alls kyns skemmtiefni, hljóðfæraleik, dans, söng og leik. Aðrir hópar sjá um að skipuleggja veislusalinn í Höllinni, leggja á borð og skreyta og tæknimenn sjá til þess að allir fái notið þess sem í boði verður. Öll þessi störf eru undir regnhlíf stjórnar Hugins, skólafélags MA.
Hugtakið vímulaus hátíð þýðir í Menntaskólanum á Akureyri að þátttakendur hvorki neyta áfengis eða annarra vímugjafa á hátíðinni né koma þangað eftir að hafa neytt þeirra annars staðar. Það segir Bjarni Karlsson fréttnæmt og hljóti að teljast til góðra frétta. „Góðar fréttir af ungu fólki eru ekki síður fréttir en þegar einhver vandræði koma upp. Nemendur MA telja það forréttindi að fá tækifæri til að njóta vímulausrar stórhátíðar þegar eðlilegt er talið að fólk á þessum aldri skemmti sér með öðru móti,“ segir Bjarni.
-BÞ






























