Sumir kalla eftir meira gagnsæi í stjórnsýslunni, en flestum þykir nóg um þegar viðkvæm mál eru rædd í heyranda hljóði
Aðstaða hjá þeim sem þurfa að leita til Tryggingastofnunar vegna viðkvæmra og persónulegra mála er fyrir neðan allar hellur að mati Guðnýjar Gunnlaugsdóttur sem hefur sent sýslumanni bréflega kvörtun. Móttaka Tryggingastofnunar er nú á jarðhæð í Sýslumannshúsinu og krefst Guðný úrbóta, enda skorti næði og tillitssemi gagnvart þeim sem þurfi að leita til TR. „Ég er alls ekki eina manneskjan sem er ósátt við aðstöðuna þarna,“ segir Guðný.
Í bréfi sem hún stílar á Björn Jósef Arnviðarson sýslumann segir að aðstaðan sé til “háborinnar skammar”. Næði sé lítið sem ekkert fyrir persónuleg mál. Enginn sem þurfi að ræða mál við fulltrúa TR vilji að annað fólk úti í bæ geti heyrt hvað fer fram. „Ég hef lent í því oftar en einu sinni að fulltrúi sem ég hef verið að ræða við hefur þurft að biðja fólk um að fá sér sæti en standa ekki við innganginn og horfa inn og hlusta á það sem við erum að ræða,“ segir m.a. í bréfi Guðnýjar til sýslumanns.
Biðstofan er að mati Guðnýjar ekki heldur nægilega skilvirk, þar sé allt í einni kös. „Ég hélt í fyrstu að þessi aðstaða væri til bráðabirgða en komst að því um daginn að svo er ekki og það þykir mér fyrir neðan allar hellur,“ skrifar Guðný og fer fram á úrbætur.
Blaðið sendi sýslumanni fyrirspurn vegna málsins. Svör höfðu ekki borist fyrir prentun.
-BÞ






















