Lof og last vikunnar

Lof og last vikunnar

Lof og lastLast fær Eining-Iðja fyrir „endalausan skrúðfjaðraleik“ í stað þess að hugsa um það sem mestu máli skiptir; að bæta kjör verkafólks. Svo skrifar ungur Norðlendingur en Eining-Iðja fékk sérstakt lof í síðasta blaði fyrir skipulagningu orlofsferðar. „Einhver myndi bölva og ragna yfir endlausum skrúðfjaðraleik hinna svokölluðu verkalýðsfélaga þegar þau ættu, í stað þess að vera sumarbústaðafélög, að berjast fyrir 1) bættum kjörum sinna skjólstæðinga og 2) að skjólstæðingar raunverulega fái það sem þeir eiga rétt á,“ skrifar Norðlendingurinn og segist reiður.

Lof fær Sinfóníuhljómsveit Norðurlands fyrir að kynna nýjan hljómsveitarstjóra á fyrstu tónleikum vetrarins á Akureyrarvöku. Svo skrifar lesandi í bréfi til blaðsins. „Vonandi verður framhald á slíku. SN fær einnig lof fyrir að hefja starfsár sitt á Akureyrarvöku. SN fær sömuleiðis lof fyrir mörg samstarfsverkefni á vetri komanda,“ bætir hann við.
Last fær Sinfóníuhljómsveit Norðurlands fyrir að spila aðeins þrenna sinfóníska tónleika á komandi vetri, segir Akureyringur í öðru bréfi. „Hinir tónleikarnir eru þrennir popp og rokktónleikar og svo kvikmyndasýning, sem varla getur talist tónleikar - hvað þá sinfóníutónleikar, og svo kammertónleikar með örfáum hljóðfæraleikurum sem varla geta talist sinfóníutónleikar heldur. Svo má nefna heimsókn Sinfóníu Færeyja. Á þrennum tónleikum vetrardagskrár Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands spilar hljómsveitin því ekki einn tón. Á öðrum þrem er hljómsveitin í undirleikshlutverki. Eftir standa þrennri tónleikar með sinfónískri tónlist,“ skrifar sá.

Lof fær Veðurstofan fyrir að draga hvergi af sér í aðvörunum vegna illviðris sem spáð hefur verið á Norðurlandi á næstunni. Þetta segir kona sem man vel hvellinn 8. september í fyrra en þá var deilt um hvort nægilega hefði verið varað við. Stórfellir varð þá hjá sauðfjárbændum vegna snjóa…

halogotop (1)

Þessi sóttu um stöðu kynningarstjóra hjá HA

Akureyri vikublað hefur fengið nafnalista umsækjenda að um stöðu forstöðumanns markaðs- og kynningarsviðs við Háskólann á Akureyri. Alls eru 28 nöfn á listanum en ráðið verður bráðlega í stöðuna eftir ... Lesa »

Bjarni S. Jónasson er nýr forstjóri Sjúkrahússins áAkureyri

Bjarni Jónasson skipaður forstjóri FSA

Bjarni S. Jónasson hefur verið skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra skipaði Bjarna í stöðuna að undangengnu mati hæfnisnefndar sem taldi ... Lesa »

Nýnemarnir fylgjast með af áhuga

Stúlkum fjölgar í málm- og véltæknigreinum VMA

Sex stúlkur hófu í haust nám í grunndeild málm- og véltæknigreina hjá VMA en það er töluverð fjölgun frá síðustu árum. Þetta þýðir að 10% nýnema í deildinni eru stúlkur en í það heila eru nýnemar ... Lesa »

Grenndargralinn

Leitin að Grenndargralinu hefst fljótlega

Hinn árlegi viðburður Leitin að Grenndargralinu sem ætlaður er nemendum á unglingastigi í grunnskólum Akureyrar, hefst föstudaginn 13. september. Í þetta sinn er Leitin valgrein en það er í fyrsta ... Lesa »

Hægri réttur verður afnumin á Hamarstíg og biðskylda sett í staðinn

Biðskylda sett á hliðargötur

Skipulagsnefnd Akureyrarbæjar ákvað á síðasta fundi sínum að setja biðskyldu á gatnamót Helgamagrastrætis, Holtagötu og Hlíðargötu að Hamarstíg. Er þetta gert að beiðni Edwards Hákons Huijbens og ... Lesa »

Leikritið Segðu mér satt verður sýnt í Rýminu um næstu helgi

Segðu mér satt um næstu helgi

Leikritið Segðu mér satt eftir Hávar Sigurjónsson verður sýnt í Rýminu á Akureyri 7. sept n.k. Leikritið fjallar um eldri hjón, leikara, sem virðast innilokuð í leikhúsi ásamt fullorðnum syni sínum ... Lesa »

Jakobína Sigurðardóttir

Málþing um Jakobínu

Laugardaginn 5. október verður haldið málþing um skáldkonuna Jakobínu Sigurðardóttur (1918-1994) og verk hennar í félagsheimilinu Skjólbrekku í Mývatnssveit. Dagskrá verður auglýst síðar en áhugafólk ... Lesa »

Ferðamál á Íslandi forsíða

Ný bók um ferðamál

Út er komin bókin Ferðamál á Íslandi, fyrsta rit sinnar tegundar á íslensku; heildstætt grundvallarrit sem tekur á ferðamálum í víðu samhengi. Bókinni er skipt í þrjá meginhluta sem hver um sig ... Lesa »

Frá sýningu ÁLFkvenna. Mynd: Daníel Starrason

Gluggað í mannlífið

Í tilefni Akureyrarvöku hafa ÁLFkonur sett upp ljósmyndasýningu í gluggum Sýslumannshússins við Ráðhústorg, Hafnarstræti 107 á Akureyri. Sýningin stendur bara um helgina og verður tekin niður í dag, ... Lesa »

lögreglan

Erill hjá lögreglu - einn sturlaður af fíkniefnaneyslu

Þó nokkur erill var hjá lögreglunni á Akureyri í nótt og nokkur ölvun. „Það var meira um að vera hjá okkur en hefur verið undanfarið en svo sem ekki mikið miðað við fjölda fólks sem var í bænum,“ ... Lesa »

Það er margt um manninn á heimskringlu í Hofi

Stemmningin á Akureyrarvöku - myndir

Það hefur verið líf og fjör það sem af er Akureyrarvöku og nóg er eftir enn. Ljósmyndarinn Daníel Starrason er á ferðinni með myndavélina og hér má sjá brot af stemmningunni. ... Lesa »

Heyrst hefur

Heyrst hefur …

Heyrst hefur að lúkasarsyndróm númer eitthvað hafi enn dúkkað upp en sá kvittur gekk um Akureyri í vikunni að sérlega hættulegur og alþekktur barnaníðingur væri fluttur til Akureyrar. Maðurinn sem um ... Lesa »

DST_8059

Litrík dagskrá Akureyrarvöku í dag

Akureyrarvaka hófst í gærkvöldi í prýðilegu veðri með Rökkurró í Lystigarðinum og Draugagöngu um Innbæinn. Dagskráin nær hápunkti sínum í dag með alls kyns uppákomum og viðburðum. Í Listagilinu ... Lesa »

Fjallagrasabrauð

Fjallagrasabrauð

10 gr fjallagrös (um 2 lúkur) vatn 375 gr heilhveiti 75 gr malað byggmjöl 100 gr hafragrjón 35 gr sólblómafræ 2 msk pálmasykur eða hrásykur 1 msk lyftiduft 1 tsk matarsódi 1 tsk ... Lesa »

Urdur Snædal

Óraði ekki fyrir þessari dökku hlið Akureyrar

Lögreglan á Akureyri hefur upplýst fjársvikamál þar sem Akureyringur á þrítugsaldri sveik pening út úr 10-12 borgurum með því að þykjast eiga vörur og bjóða til sölu á mjög góðu verði. Urður Snædal, ... Lesa »

download

Plastpokalaus laugardagur á morgun

Á hverjum degi fellur til ótrúlegt magn úrgangs úr plasti í veröldinni. Þar fara framarlega í flokki hinir sívinsælu plastpokar, en talið er að um 1 triljón plastpoka skili hlutverki sínu á heimsvísu ... Lesa »

Það er ekki síst meðgöngujóga sem þær stöllur Birna og Sandra bjóða upp á

Ringulreið í samtímanum

Ný stöð fyrir jóga, Jógahofið, verður opnuð á Akureyri um mánaðamótin Aðstandendur segja mikið streituástand hafa einkennt þjóðfélagið okkar að undanförnu. „Samkvæmt jógafræðunum erum við nú á leið ... Lesa »

Lára og Hjalti

Fyrsta plata Hjalta og Láru Sóleyjar

Eftir að hafa komið saman fram yfir 500 sinnum á síðustu átta árum gefa hjónin Hjalti Jónsson og Lára Sóley Jóhannsdóttir loks út sína fyrstu plötu nú í lok ágúst sem nefnist einfaldlega Hjalti og ... Lesa »

Bakki við Húsavík. Þar sem áætlað er að reisa kísilmálmverksmiðju.

Mikil jarðskjálftahætta á Húsavík

Í kjölfar aukinnar jarðskjálftavirkni á Norðurlandi var ráðstefna um málefnið haldin á Húsavík í byrjun júní sl. og í samantekt frá ráðstefnunni kemur fram að full ástæða sé til að endurmeta ... Lesa »

Danni

Tónlistarlífið á Norðurlandi á veggjum Hofs

Ljósmyndarinn Daníel Starrason opnar í dag sýningu sem ber heitið Norðlenskt tónlistarfólk. Allar myndirnar á sýningunni eru svarthvítar portrettmyndir af tónlistarfólki sem á rætur að rekja norður ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Last fær Eining-Iðja fyrir „endalausan skrúðfjaðraleik“ í stað þess að hugsa um það sem mestu máli skiptir; að bæta kjör verkafólks. Svo skrifar ungur Norðlendingur en Eining-Iðja fékk sérstakt lof í ... Lesa »

Að fara í berjamó er fjölskylduskemmtun

Rjóminn seldist upp!

Berjatínsla Norðlendinga hefur náð hámarki ef veðurspá gengur eftir. Mikið hefur verið tínt af berjum, einkum krækiberjum, bláberjum og aðalbláberjum og mátti sl. sunnudag sjá fólk í berjamó út um ... Lesa »

Jón Gunnar, framkvæmdastjóri Akureyrarvöku

Áhættusöm tilraun sem gæti misheppnast

Bæjarhátíðin Akureyrarvaka verður haldin um helgina. Akureyrarvaka fer fram í tilefni afmælis Akureyrarbæjar, en vond veðurspá hefur orðið til þess að ekki er alveg víst hvort fyrirhuguð dagskrá mun ... Lesa »

Sumir kalla eftir meira gagnsæi í stjórnsýslunni, en flestum þykir nóg um þegar viðkvæm mál eru rædd í heyranda hljóði

Hnýsni vandamál hjá sýslumanni?

Aðstaða hjá þeim sem þurfa að leita til Tryggingastofnunar vegna viðkvæmra og persónulegra mála er fyrir neðan allar hellur að mati Guðnýjar Gunnlaugsdóttur sem hefur sent sýslumanni bréflega kvörtun. ... Lesa »

Hundraðasta tölublaðið!

Í dag kom út 100. tölublað vikublaðsins Akureyri. Fyrsti útgáfudagur var 11. ágúst árið 2011. Blaðið markaði frá fyrsta degi spor í íslenskri þjóðmálaumræðu. Ekki bara á Norðurlandi heldur var fyrsta ... Lesa »

Skoða meira