Berjatínsla Norðlendinga hefur náð hámarki ef veðurspá gengur eftir. Mikið hefur verið tínt af berjum, einkum krækiberjum, bláberjum og aðalbláberjum og mátti sl. sunnudag sjá fólk í berjamó út um allar trissur í Eyjafirði.
Berjaneyslu fylgir gjarnan fituríkt meðlæti og lá nærri að allur rjómi seldist upp á Akureyri fyrir nokkrum dögum. Að minnsta kosti ein búð varð gjörsamlega uppiskroppa með rjóma og hin öfluga matvörukeðja Nettó tæmdist næstum af hinu ómissandi meðlæti. Starfsfólk matvörubúða segir mikinn sölukipp hafa orðið í skyri einnig síðustu daga.
Myndirnar eru teknir skammt sunnan Dalvíkur en þar var tínt af kappi sl. sunnudag eins og vænta má. Í kappi við komandi snjó og næturfrost.
-BÞ






















