Heyrst hefur að lúkasarsyndróm númer eitthvað hafi enn dúkkað upp en sá kvittur gekk um Akureyri í vikunni að sérlega hættulegur og alþekktur barnaníðingur væri fluttur til Akureyrar. Maðurinn sem um ræðir er reyndar ekki með öllu ólíkur hinum alræmda. En hann er ekki sá sem talið var. Lögreglan kallar sjálf málið lúkasarheilkenni…
Heyrst hefur að Hildur Eir Bolladóttir prestur í Akureyrarkirkju hafi staðið sig frábærlega þegar hún fékk það verkefni að jarðsyngja einn ástsælasta myndlistarmann Akureyrar, Jónas Viðar, sl. föstudag. Þá er Valmar organisti og alhliða músíkant sagður hafa farið á kostum við píanóið eins og allir aðrir tónlistarmenn. Queen-tónlist var ráðandi að ósk hins látna, ástsæla, hæfileikaríka og vinamarga listamanns. Hefur heyrst að mikill kraftur og stemning hafi slegið ögn á sorg viðstaddra – eða gert hana a.m.k. ögn bærilegri…
Meira um Valmar. Heyrst hefur að hann sé að íhuga flutning frá Akureyri til heimalandsins, Eistlands. Myndi slík ákvörðun skilja eftir sig stórt gat í skemmti- og menningarlífi Norðlendinga. Um tíma leit út fyrir að Valmar færi næsta sumar en nú hefur heyrst að það vrði ekki fyrr en í fyrsta lagi eftir tvör ár. Aðdáendur tónlistarmannsins láta sig dreyma um að kannski flytji hann aldrei. Vilji hafa hann áfram á Akureyri. Valmar sé „einn af okkur“…
-BÞ






















