Á laugardaginn fer fram alþjóðleg matarveisla í Hofi þar sem hægt verður að smakka á kræsingum frá yfir tuttugu þjóðlöndum. Viðburðurinn er hluti af dagskrá Akureyrarvöku sem í ár er tileinkuð fjölmenningu. Í fyrra var slík matarveisla haldin í fyrsta sinn, þá í Listasafninu, og þótti afskaplega vel heppnuð og gestir fengu þar að smakka sælkerarétti í bland við skrýtna rétti sem þeir höfðu ekki bragðað áður.
Venju samkvæmt verður heilmikil dagskrá í Hofi á Akureyrarvöku og ættu flestir að finna eitthvað við sitt hæfi en á meðal dagskrárliða er ljósmyndasýning, klassískir tónleikar, kvikmyndasýning, útgáfutónleikar, stórkostleg töfrabragðasýning og margt fleira.
Á föstudaginn kl. 18 opnar ljósmyndarinn Daníel Starrason ljósmyndasýningu í Hamragili sem ber yfirskriftina Norðlenskt tónlistarfólk. Daníel hefur myndað tónlistarfólk úr ýmsum áttum sem á það þó sameiginlegt að hafa búið eða starfað á Norðurlandi.
Klukkan 20 hefjast tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands þar sem Mozart verður í aðalhlutverki. Einleikari á tónleikunum er ungverski fiðluleikarinn Zsuzsa Debre og hljómsveitinni stjórnar WolfgangTrommer frá Þýskalandi.
Að loknum tónleikum Sinfóníunnar um kl. 22 stíga hjónin Hjalti og Lára á svið, ásamt hljómsveit. Þau munu spila lög af nýútkominni plötu en tónleikarnir fara fram frammi í Hamragili og má búast við notalegri stemningu við kertaljós og ljúfa tóna. Þess má geta að lagið Eina nótt af plötunni er nú í þriðja sæti vinsældarlista Rásar 2.
Á sama tíma og tónleikar Hjalta og Láru fara fram verður alþjóðlegt barnagaman í Nausti þar sem boðið verður uppá andlitsmálningu, leiki ofl. Í Hömrum verður lítið kaffihús þar sem syrpa Akureyrarkvikmynda frá Kvikmyndasafni Íslands verður sýnd. Á torginu fyrir utan Hof verður svo alþjóðlegur nytja og handverksmarkaður.
Á laugardagskvöldið, að loknum tónleikum í Gilinu, munu Hvanndalsbræður taka á móti gestum í Hofi. Þekktir Akureyringar stíga á stokk með þeim bræðrum og flytja nokkur af þekktustu lögum hljómsveitarinnar, „það má búast við að „Gestalistinn“ komi á óvart,“ segir í tilkynningu frá Hofi.
Á sunnudagsmorguninn kl. 11 eru börn og fjölskyldur þeirra boðin sérstaklega velkomin þegar hinn frábæri töframaður Einar Mikael sýnir sjónhverfingar og kennir töfrabrögð.
Ókeypis er inn á alla viðburðina nema Mozartveislu Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.
-SBS











