Í dag kom út 100. tölublað vikublaðsins Akureyri. Fyrsti útgáfudagur var 11. ágúst árið 2011. Blaðið markaði frá fyrsta degi spor í íslenskri þjóðmálaumræðu. Ekki bara á Norðurlandi heldur var fyrsta forsíðufrétt blaðsins tekin upp af öllum helstu landsfjölmiðlunum. Það hefur gerst iðulega síðan.
Eitt af fyrstu verkum ritstjóra var að ná samkomulagi við útgefandann, Fótspor ehf, að flytja umbrot og vinnslu blaðsins frá Reykjavík norður í Eyjafjörð. Vorið 2012 var fréttavefurinn akureyrivikublad.is stofnaður af góðu fólki. Vefsíðan flytur fréttir og ýmsar upplýsingar og hefur ítrekað mælst sem ein af tuttugu mest sóttu vefsíðum landsins. Akureyri vikublað er atvinnuskapandi framtak í norðlensku héraði og lesendum að kostnaðarlausu.
Það hefur komið fyrir að starfsfólk blaðsins hefur þurft að njóta lögregluverndar þegar blaðið hefur sinnt aðhaldshlutverki fjölmiðla af krafti, gjarnan í umfjöllun um undirheima norðanlands. Á þessum tímamótum er þó starfsfólki efst í huga þakklæti og mikill og vaxandi stuðningur lesenda í gegnum tölublöðin hundrað. Án ykkar og sívaxandi auglýsingaveltu væri ekkert Akureyrarblað á markaði. En varðhundshlutverkið er ekki eina hlutverk fjölmiðla. Blöð eru líka samfélagsspegill og sýna rannsóknir sterka fylgni milli staðarvitundar íbúa í smærri byggðum og héraðsmiðlunar. Húmor, mannlífsinnslög og menningarmál hafa því alltaf verið fyrirferðarmikil í blaðinu og fjöldi aðsendra greina frá lesendum verið einn burðarþátta. Gagnvirkni er góð. Blaðið þakkar hundruð fréttaskota og mikinn trúnað við lesendur allt frá upphafi. Til að varpa einhverju ljósi á myndræna útgáfusögu blaðsins fylgja hér nokkur valin augnablik eftir Völund Jónsson, ljósmyndara blaðsins.
Ritstjóri











