Stórtækt svindlmál upplýst

Stórtækt svindlmál upplýst

Það liggja mikil verðmæti í tæknibúnaði af öllum gerðum. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint enda tekin í verslun hér í bænum

Lögreglan á Akureyri hefur upplýst stórfellt svindlmál þar sem Akureyringur á þrítugsaldri hefur haft hundruð þúsunda af almennum borgurum með svikum og prettum. Alls ræðir um 10-12 mál.

Maðurinn hefur þóst eiga ýmis tæki til sölu, síma, tölvur, varahluti, dekk og fleira. Stundum hafa „viðskiptin“ verið auglýst á vefsíðum en stundum hefur maður þekkt mann og gylliboð um ódýr tæki orðið til þess að borgarar hafa lagt fé inn á reikning mannsins án þess að fá nokkru sinni vöruna í hendur. Maðurinn lofaði gjarnan að hann myndi skutlast sjálfur með vöruna til viðtakanda eftir að búið væri að leggja inn á reikning hans. Aldrei virðist um raunverulega söluvöru hafa verið að ræða.
Urður Snædal er í hópi fórnarlamba mannsins. Hún tapaði 35.000 krónum á ætluðum fartölvukaupum og vill hún nota tækifærið til að vara fólk við slíkum svindlurum. Hún segist upplifa mikla skömm að hafa bitið á agnið en datt ekki í hug að svona svik ættu sér stað á Akureyri.

Gunnar Jóhannsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á Akureyri, segir að um öll viðskipti skuli gilda að fólk hitti seljandann augliti til auglitis og sjái vöruna með eigin augum. Sjá nánar bls. 2 í blaði vikunnar.

download

Plastpokalaus laugardagur á morgun

Á hverjum degi fellur til ótrúlegt magn úrgangs úr plasti í veröldinni. Þar fara framarlega í flokki hinir sívinsælu plastpokar, en talið er að um 1 triljón plastpoka skili hlutverki sínu á heimsvísu ... Lesa »

Það er ekki síst meðgöngujóga sem þær stöllur Birna og Sandra bjóða upp á

Ringulreið í samtímanum

Ný stöð fyrir jóga, Jógahofið, verður opnuð á Akureyri um mánaðamótin Aðstandendur segja mikið streituástand hafa einkennt þjóðfélagið okkar að undanförnu. „Samkvæmt jógafræðunum erum við nú á leið ... Lesa »

Lára og Hjalti

Fyrsta plata Hjalta og Láru Sóleyjar

Eftir að hafa komið saman fram yfir 500 sinnum á síðustu átta árum gefa hjónin Hjalti Jónsson og Lára Sóley Jóhannsdóttir loks út sína fyrstu plötu nú í lok ágúst sem nefnist einfaldlega Hjalti og ... Lesa »

Bakki við Húsavík. Þar sem áætlað er að reisa kísilmálmverksmiðju.

Mikil jarðskjálftahætta á Húsavík

Í kjölfar aukinnar jarðskjálftavirkni á Norðurlandi var ráðstefna um málefnið haldin á Húsavík í byrjun júní sl. og í samantekt frá ráðstefnunni kemur fram að full ástæða sé til að endurmeta ... Lesa »

Danni

Tónlistarlífið á Norðurlandi á veggjum Hofs

Ljósmyndarinn Daníel Starrason opnar í dag sýningu sem ber heitið Norðlenskt tónlistarfólk. Allar myndirnar á sýningunni eru svarthvítar portrettmyndir af tónlistarfólki sem á rætur að rekja norður ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Last fær Eining-Iðja fyrir „endalausan skrúðfjaðraleik“ í stað þess að hugsa um það sem mestu máli skiptir; að bæta kjör verkafólks. Svo skrifar ungur Norðlendingur en Eining-Iðja fékk sérstakt lof í ... Lesa »

Að fara í berjamó er fjölskylduskemmtun

Rjóminn seldist upp!

Berjatínsla Norðlendinga hefur náð hámarki ef veðurspá gengur eftir. Mikið hefur verið tínt af berjum, einkum krækiberjum, bláberjum og aðalbláberjum og mátti sl. sunnudag sjá fólk í berjamó út um ... Lesa »

Jón Gunnar, framkvæmdastjóri Akureyrarvöku

Áhættusöm tilraun sem gæti misheppnast

Bæjarhátíðin Akureyrarvaka verður haldin um helgina. Akureyrarvaka fer fram í tilefni afmælis Akureyrarbæjar, en vond veðurspá hefur orðið til þess að ekki er alveg víst hvort fyrirhuguð dagskrá mun ... Lesa »

Sumir kalla eftir meira gagnsæi í stjórnsýslunni, en flestum þykir nóg um þegar viðkvæm mál eru rædd í heyranda hljóði

Hnýsni vandamál hjá sýslumanni?

Aðstaða hjá þeim sem þurfa að leita til Tryggingastofnunar vegna viðkvæmra og persónulegra mála er fyrir neðan allar hellur að mati Guðnýjar Gunnlaugsdóttur sem hefur sent sýslumanni bréflega kvörtun. ... Lesa »

Hundraðasta tölublaðið!

Í dag kom út 100. tölublað vikublaðsins Akureyri. Fyrsti útgáfudagur var 11. ágúst árið 2011. Blaðið markaði frá fyrsta degi spor í íslenskri þjóðmálaumræðu. Ekki bara á Norðurlandi heldur var fyrsta ... Lesa »

Atvinnu- og nýsköpunarhelgin fest í sessi

Fulltrúar Akureyrarbæjar, Stefnu, Tækifæris og Háskólans á Akureyri undirrita samninginnÍ dag skrifuðu fulltrúar Háskólans á Akureyri, Stefnu hugbúnaðarhúss, Tækifæris fjárfestingasjóðs og ... Lesa »

Fjölgun forritara á Dalvík

Rekstur Dalpay á Dalvík gengur vel um þessar mundir. Fyrirtækið fæst við svokallaða færslumiðlun þar sem vörur eða ýmist seldar í eigin nafni eða greiðslugátt notuð. Forstjóri, Björn Snorrason, segir ... Lesa »

Aðeins átta vikur á fjalli

Fjölmörg dæmi erum að sauðfjárbændur hafi ákveðið að flýta göngum og réttum vegna norðan illviðris, hvassviðris, úrkomu og jafnvel snjókomu sem gert er ráð fyrir á morgun og laugardag. Áður auglýst ... Lesa »

Einar Mikael töframadur sýnir í Hofi um helgina

Alþjóðleg matarveisla í Hofi

Á laugardaginn fer fram alþjóðleg matarveisla í Hofi þar sem hægt verður að smakka á kræsingum frá yfir tuttugu þjóðlöndum. Viðburðurinn er hluti af dagskrá Akureyrarvöku sem í ár er tileinkuð ... Lesa »

Víða rökrætt um Reykjavíkurflugvöll

„Þeir sem vilja leggja af innanlandsflug til Reykjavíkur þurfa að koma með lausnir á neyðarsjúkraþjónustu við landsbyggðina. Þær eru eflaust fjölmargar. Til að mynda mætti koma upp alvöru spítala ... Lesa »

KA tekur á móti Tindastóli

KA tekur á móti Tindastól í 1. deild karla í knattspyrnu í dag og hefst leikurinn klukkan 18.00. Eins og venjan er leika KA menn á Akureyrarvelli. Síðast þegar þessi lið mættust skildu þau jöfn, ... Lesa »

Garðaskoðun og býflugnabú

Í dag kl. 17 mun Garðyrkjufélag Akureyrar standa fyrir garðaskoðun en það er garður Björns Steinars Sólbergssonar og Hrefnu Harðardóttur að Heiðartúni í Eyjafjarðasveit sem verður skoðaður. Björn ... Lesa »

Vill fjölga fæðingardeildum í þágu öryggis

Íslensk heilsugæsla tekur ekki sem skyldi mið af vondu vetrarveðri og vanmetur óöryggi þess þáttar hvað varðar barnsfæðingar í dreifðum byggðum. Þetta á ekki síst við um norðurhluta landsins að mati ... Lesa »

Öruggur sigur Þór/KA á Þrótti

Þór/KA tók á móti botnliði Þróttar í Pepsi-deild kvenna í kvöld. Rjómablíða var á Þórsvelli, lognið á undan storminum, og litu fimm mörk dagsins ljós. Þau voru öll norðankvenna og lyftu þær sér upp í ... Lesa »

Stórtækt svindlmál upplýst

Lögreglan á Akureyri hefur upplýst stórfellt svindlmál þar sem Akureyringur á þrítugsaldri hefur haft hundruð þúsunda af almennum borgurum með svikum og prettum. Alls ræðir um 10-12 mál. Maðurinn ... Lesa »

Björn Þorláksson

Að fljúga of nálægt sólinni

Íslendingar fögnuðu nýrri ríkisstjórn í vor og óskuðu þess að hún yrði störfum sínum vaxin. Mjölið var þó maðkað. Framsóknarflokkur hafði keypt stóran hluta kjósenda með gylliboði sem kannski hefði ... Lesa »

Hús vikunnar: Hafnarstræti 96; París

Í síðustu viku tók ég fyrir Hótel Akureyri eða Hafnarstræti 98 en næsta hús neðan við er annað glæsilegt timburhús, Hafnarstræti 96. Húsið á aldarafmæli í ár en það var reist árið 1913 af kaupmanninum ... Lesa »

Besta uppfinning allra tíma

Vélsmiðjan Hamar og Promens á Dalvík hafa gert með sér samkomulag um að Promens kynni og selji svokallað Kristjánsbúr í gegnum alþjóðlegt sölukerfi sitt. Búrið er það fyrsta sinnar tegundar sem hlotið ... Lesa »

Ólína Þorvarðardóttir er nýr sviðsforseti Hug- og félagsvísindadeildar HA

Ólína marði kosningu með einu atkvæði

Ólína Þorvarðardóttir fékk í dag flest atkvæði um stöðu sem sviðsforseti Hug- og félagsvísindadeildar Háskólans á Akureyri. Hún atti kappi við m.a. Sigrúnu Stefánsdóttur fyrrum dagskrárstjóra Rúv. ... Lesa »

Hjartað í Vatnsmýri óskar eftir fólki í myndatöku

Forsvarsmenn Hjarta í Vatnsmýri hafa skipulagt myndatöku á Akureyrarflugvelli klukkan 16 í dag. „Við viljum biðja alla sem hafa tök á að mæta,“ segir Njáll Trausti Friðbertsson einn af ... Lesa »

Skoða meira