Félagarnir í Kammerkórnum Hymnodíu voru ekki aftarlega í röðinni þegar ímyndunarafli og skapandi gáfum var útdeilt eins og margir hafa tekið eftir og nú síðast á svokölluðum Fjölbragðatónleikum en kórinn hefur flakkað um Norðausturland undanfarna daga og haldið skemmtanir á átta stöðum við góða aðsókn og frábæra stemmningu.
Fyrstu tónleikarnir fóru fram í Hofi á Akureyri en uppselt var á þá og þurftu margir frá að hverfa og af því tilefni hefur verið ákveðið að halda lokatónleika í fjölbragðatónleikaferðinni í Pakkhúsinu á Akureyri, Hafnarstræti 19, föstudaginn 15. nóvember.
Aðgangseyrir verður 2000 kr en af hverjum seldum miða renna 700 kr. til uppbyggingar heimilis fyrir munaðarlausar stúlkur í Tansaníu, þar sem stofnaður verður sérstakur tónlistarsjóður.
Margir hafa orðið til að deila upplifun sinni af tónleikunum á Facebook og má lesa brot af þeim umsögnum á Facebookviðburði tónleikanna en einnig skrifaði Jón Hrólfur Baldursson, blaðamaður á siglo.is, skemmtilega grein um upplifun sína af tónleikunum sem lesa má hér en hann tók einnig upp meðfylgjandi myndband.



