Síðastliðnar vikur hef ég tekið fyrir húsaröðina neðarlega í Strandgötunni en hús númer 7-13 eiga það sameiginlegt að vera byggð 1907 og standa á einskonar brunareit en forverar allra þessara húsa brunnu þann 18. október 1906. Þar brunnu til grunna sjö tiltölulega nýleg hús (það elsta var byggt 1885 eða 21 árs) og þar misstu um 80 manns heimili sín en ekki varð manntjón. Hlýtur það að teljast kraftaverk, því menn lögðu sig í mikla hættu við slökkvistarf og einnig tíðkaðist þarna að hlaupa inn í brennandi hús til að bjarga verðmætum. Þá breiddist eldur hratt út og eflaust margir átt fótum fjör að launa. Hér er nánari umfjöllun um Oddeyrarbrunan og stórbrunana tvo í Innbænum 1901 og 1912
Oddeyrarbruninn mun hafa átt upptök sín í Strandgötu 5 og breiddist fljótt yfir í Strandgötu 7 og þaðan uppeftir götunni. Þessi hús voru byggð um 1900-1904 og voru ein þau stærstu og glæsilegustu í bænum. Strandgata 5 var þrílyft á háum kjallara og með burstum og kallað Horngrýti vegna sérkennilegra bursta sem skreyttar voru útskurði.
Strandgata 7 var einnig þrílyft og með miklum turni á vesturenda og því kallað Turnhús. Af myndum að dæma virðast þessi hús hafa verið á stærð við Menntaskólann (Gamla skóla, sem þá var gagnfræðaskóli) og Samkomuhúsið (sem þá var í byggingu). Fullyrða má að upprunalegu glæsihýsin á 5 og 7 hafi sennilega enginn núlifandi maður séð berum augum.
Á grunni Turnhússins var það hús sem nú stendur á Strandgötu 7 byggt árið 1907. Líklega hefur þar verið á ferðinni Jósef Jónsson sem átti Turnhúsið en árið 1915 er eigandi hússins Kristín Eggertsdóttir frá Kroppi. Húsið er tvílyft timburhús með lágu aflíðandi risi en það var í upphafi klætt bárujárni. Þetta get ég fullyrt, því á mynd frá 1909 (á bls.191 í Steindóri: 1993) sést sú klæðning komin á enda voru menn mikið farnir að huga að því að eldverja hús eftir m.a. stórbrunan 1906.
Húsið hefur að langmestu leyti haldið sínu upprunalegu útliti utan en byggð hefur verið við það einlyft bygging með skúrþaki bakatil. Þá hefur gluggaskipan efri hæðar eilítið verið breytt, á myndinni frá 1909 er t.d. aðeins einn gluggi á efri hæð vesturenda. Alla tíð hafa verið síðir verslunargluggar á jarðhæð og krosspóstar hafa verið í gluggum frá upphafi. Panelklæðning var sett á húsið 1997.
Kristín Eggertsdóttir rak í húsinu hótel uns Kaupfélag Verkamanna og verkalýðsfélög eignuðust það. Þar höfðu þau fundarsal og skrifstofuaðstöðu um áratugaskeið og margir kannast við húsið sem Verkalýðshúsið. Síðar kom þarna húsgagnaverslunin Augsýn en árið 1997 var hafist handa við endurbyggingu hússins en það var orðið ansi hrörlegt. Var það fyrsta húsið í þessari röð sem tekið var í gegn. Það sumar var veitingahúsið Kaffi Akureyri opnað á jarðhæð og er það enn starfandi þar. Um tíma var skemmtistaðurinn á báðum hæðum hússins en nú er á efri hæðinni matsölustaðurinn Pengs. Ég hef oft bæði farið á Kaffi Akureyri og einnig fengið mér að borða á Pengs og get vel mælt með hvoru tveggja.
Á grunni upprunalega stórhýsisins á Strandgötu 5 var reist einlyft bárujárnsklætt timburhús með háu portbyggðu risi og miðjukvisti. Þar var starfrækt m.a. sápuverslun og Búnaðarbankinn um langt skeið. Það hús stendur enn, en síðustu rúmu 40 árin hefur það staðið spölkorn norðan Akureyrar, um 5 km. frá miðbænum við Lónsá. Þangað var það flutt um 1970 af Gísla Eiríkssyni og hlaut nafnið Berghóll II. Það hús er lítið breytt frá upphafi en nú skilst mér að það bíði flutnings frá núverandi stað. Ég hefði sagt að vel færi á því að flytja það hús á upprunalegan stað og gera þar upp - EN þar er víst búið að byggja…
Arnór Bliki Hallmundsson
Heimildir: Gils Guðmundsson ritstjóri (1950): Öldin okkar; minnisverð tíðindi 1901-1930. Reykjavík: Forlagið Iðunn.
Steindór Steindórsson (1993). Akureyri; höfuðborg hins bjarta norðurs. Reykjavík: Örn og Örlygur
PS. Í síðustu viku lét ég fylgja með lag með Gene Autry, jafnaldra Strandgötu 7-13 en stórsöngvarinn góðkunni Stefán Íslandi var einnig jafn gamall þessum húsum, fæddur 1907. Hér er eitt af þekktustu lögunum í hans flutningi, Í fjarlægð. Veit ekki síðan hvenær upptakan er en hún er gömul, gæti verið frá 1940-50 eða jafnvel eitthvað eldri.


