Þelamerkurskóli í Hörgársveit fagnar 50 ára afmæli sínu á þessu starfsári. Af því tilefni verður haldin afmælishátíð með opnu húsi miðvikudaginn 20. nóv. kl. 10:30-18:00. Þá geta gestir og gangandi meðal annars:
- leikið sér undir stjórn vinaliðanna,
- hlustað á skólakórinn syngja skólasönginn undir nýju lagi,
- fengið sér hressingu á Café Þeló
- skoðað myndasýningar úr skólastarfinu
- hlustað á upplestur og tónlistaratriði
- kíkt í listasmiðju, íþróttasmiðju, Ipadsmiðju og útismiðju,
- skoðað rafræna afmælisútgáfu Glaðnings
Nokkrir af elstu nemendum skólans hafa búið til myndbönd til kynningar á afmælishátíðinni en þangað má njóta þess að kynnast lífinu í skólanum á myndbandinu hér fyrir neðan.


