Allt frá stofnun Lystigarðsins 1912 hafa verið til hugmyndir um byggingu “lysthúss” í garðinum.
Þegar fór að nálgast 100 ára afmæli hans var farið að viðra þá hugmynd að reisa þar kaffihús. Það yrði nokkurs konar afmælisgjöf til garðsins. Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar (FA) fór því af stað og auglýsti eftir tillögum og verðhugmyndum um rekstur. Var lagt upp með það, að leigugreiðslur skyldu standa undir byggingarkostnaði og því færi eftir tilboðum hversu dýrt eða stórt hús skyldi reisa. Efnt var til samkeppni um rekstur kaffihússins. Bárust 4 tilboð. Tilboð Njáls Trausta Friðbertssonar var hagstæðast. Gengið var til samninga við hann.
Því miður hafa áætlanir rekstraraðila ekki gengið upp og nú á haustdögum sá hann sig knúinn til að leita ásjár FA og jafnvel segja sig frá leigunni.
Ég sé mig knúinn að svara grein, í blaði síðustu viku, frá Njáli Trausta Friðbertssyni, stjórnarmanni í stjórn FA, og Sigurði Guðmundssyni bæjarfulltrúa, en þeir ráku Kaffi Björk. Því miður er vegið þar ómaklega að FA og ýmislegt fullyrt, sem ég tel að eigi ekki við rök að styðjast.
Njáll Trausti var í verkefnisliði fyrir húsið og sat alla fundi, þess vegna veit hann nákvæmlega hvernig hönnunin gekk og stærð hússins á því ekki að koma honum á óvart. Ég man ekki betur en að hluti stækkunar hafi verið að þeirra ósk.
Það er ekki rétt að leigan hafi hækkað, en fermetrum fjölgaði, sem leigðir voru.
Í 1. grein leigusamnings stendur orðrétt:
Leigusali leigir leigutaka húsnæðið kaffihús í Lystigarðinum á Akureyri, samtals um 150m² samkvæmt deiliskipulagi, ásamt tilheyrandi lóðarréttindum. Endanleg stærð ákveðst af hönnun hússins, sem verður unnin í samráði við leigutaka.
Einnig er þess sama getið í 4.grein.
Þess má geta að stærðin endaði í 177,2m². FA stóð fyllilega við sinn hlut, að halda öðru fram er ekki sanngjarnt.
Leigutaka er fullkunnugt um að leiguverð var bundið neysluvísitölu og hefur því hver m² hækkað úr 2.784 kr í 3.103 kr. en ekki 3.300 kr. eins og stendur í greininni.
Það stendur í greininni að FA hafi ekki skaffað þann búnað sem samið var um.
Í grein 1.1 í útboðslýsingunni kemur eftirfarandi fram:
Leigusali leggur til innréttingu, vaska, eldavél, ofn, útsogsháf og uppþvottavél í eldhúsi. Leigutaki leggur til allan annan búnað og tæki, sem hann telur sig þurfa á að halda
Ég fullyrði að FA lagði til allan þann búnað sem þarna kemur fram.
Varðandi fjölda gesta vissi leigutaki að þetta var mat forstöðumanns og ekki byggt á neinum talningum. Ég hafði samband við forstöðumann og hann heldur sig við að þessi fjöldi komi í garðinn.
Leigutaki vissi að garðurinn var ekki mokaður á veturna og því staðlaust að væna bæinn um svik á snjómokstri. Hins vegar fóru starfsmenn bæjarins að ryðja að húsinu.
Reyndar stendur í grein 1.1 í útboðslýsingunni að leigutaki eigi að sjá sjálfur um snjómokstur.
Í leigusamningi, sem er til 10 ára er hvorki uppsagnar-, né endurskoðunarákvæði.
Þeir Njáll Trausti og Sigurður Guðmundsson vita báðir að nefndir og ráð bæjarins fjalla ekki um nema formleg erindi og er því skrýtið að þeir furði sig á að formleg erindi þurfi að berast.
Hvað meintan trúnaðarbrest FA varðar vísa ég slíku á bug og veit ekki í hverju hann ætti að vera fólginn.
Að hafa kaffihús í Lystigarðinum er alveg nauðsynlegt og ég held að þessi tvö sumur hafi sýnt það. Nú liggur fyrir að tryggja að hægt verði að hafa opna aftur í vor, gestum og gangandi til yndisauka.
Það er verkefni stjórnar og starfsmanna FA að vinna að því.
Oddur Helgi Halldórsson
Stjórnarformaður FA






























