Erum að bjarga Húsmæðraskólanum, segir formaður framkvæmdaráðs Akureyrarbæjar
Oddur Helgi Halldórsson, formaður stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar, segir að grein Hólmsteins Snædal húsasmiðs sem birtist í Akureyri vikublaði í síðustu viku um Húsmæðraskólann við Þórunnarstræti byggi á „töluverðum misskilningi“.
„Ég veit ekki hvort hann gerir sér grein fyrir að sennilega var eingöngu um tvær leiðir að velja, láta húsið drabbast niður áfram, engum til gagns og mörgum til leiðinda eða gera það sem við erum að gera,“ segir Oddur Helgi.
Hann segist ekki sjá að ríki eða bær hefðu verið tilbúin að gera upp húsið. Ef einkaaðilar hefðu keypt það hefði því að líkindum verið breytt miklu meira en til stendur áður en skammtímavistun fatlaðra verður nýtt hlutverk hússins. „Við vorum sannfærð um það frá upphafi og erum enn að við björguðum húsinu. Þótt sumir búi í Nostalgíunni og hefðu ekki sætt sig við neitt annað en að aftur kæmi þarna húsmæðraskóli, þá er lífið ekki svona einfalt,“ segir Oddur Helgi.
Hann segir að bærinn hafi verið í góðu sambandi við húsafriðunarnefnd og hafi breytt tillögum eftir þeirra óskum. „Það er hálf nöturleg kveðja sem nefndin fær frá bréfritara. Mér finnst að bréfritari ætti að biðja nefndina afsökunar opinberlega.
Einn helsti ráðgjafi hennar er Pétur Ármannsson arkitekt og seint verður sagt um hann að hann beri ekki virðingu fyrir gömlum húsum. Ég minni líka á að hann er einn af höfundum byggingalistastefnu Akureyrarbæjar, þannig að hann þekkir hana,“ segir Oddur Helgi.
„Einnig veit ég að af verkum Guðjóns Samúelssonar sem teiknaði húsið að notagildi hafði mikla þýðingu fyrir hann. Ég er sannfærður um að þessar litlu breytingar og sú starfsemi sem kemur í húsið væru mjög að hans skapi. Hann myndi ekki vilja að húsið nýttist engum. Það eru verðugir fulltrúar sem nota munu húsið.“
Oddur segir að eina útlitsbreytingin sem fólk muni sjá sé dyr á austurhlið, þar sem gengið verður inn í lyftu. Til að halda symmetríu hússins sé líka sett hurð sunnan við tröppurnar. Hann segist fá mun meira af jákvæðum viðbrögðum en neikvæðum. Það sýni mikinn metnað bæjaryfirvalda að leggja í það að koma húsinu í fullkomið stand og notkun aftur, frekar en að láta það reka á reiðanum.












