Einar Ingimundarson hefur sagt starfi sínu hjá Íslenskum verðbréfum lausu en mun gegna starfi framkvæmdastjóra áfram þar til gengið hefur verið frá kaupum MP banka á Íslenskum verðbréfum
Einar sagði starfi sínu lausu í byrjun vikunnar og er uppsögnin að frumkvæði hans sjálfs en hann segir þetta vera ágætan tímapunkt til að skipta um starf nú þegar nýlegar breytingar hafa orðið á eignarhaldi fyrirtækisins. „Ég hef í nokkurn tíma haft hug á að skipta um starfsvettvang og á sjálfur frumkvæðið að þessari ákvörðun. Hluthafar félagsins hafa nýlega samþykkt kauptilboð MP banka í félagið og væntanlega fylgja því einhverjar breytingar. Þó ég óttist ekki breytingar og lítist mjög vel á nýjan eiganda tel ég að nú sé ágætis tímapunktur til að skipta um vettvang. Ég mun þó að sjálfsögðu vinna af fullum heilindum með félaginu, núverandi hluthöfum og MP banka að því að klára þau viðskipti,” segir Einar í fréttatilkynningu.
Viðskiptin sem hann vísar til eru þau að þann 15. maí sl. var greint frá því að MP banki hefði gert tilboð í allt hlutafé í Íslenskum verðbréfum hf. og að tilskilinn meirihluti eigenda félagsins hafi gengið að skilmálum tilboðsins. Ekki er endanlega ljóst hvenær kaupin ganga í gegn en kostgæfniathugun stendur nú yfir.
Einar Ingimundarson hóf störf hjá Íslenskum verðbréfum í maí 2008. Hann er lögfræðingur (mag.jur) frá Háskóla Íslands 2007 og hefur einnig lokið BS-prófi í hagfræði frá sama skóla. Einar hlaut hdl. réttindi í nóvember 2009. Hann var forstöðumaður lögfræðisviðs Íslenskra verðbréfa uns hann var ráðinn framkvæmdastjóri félagsins í ágúst 2011.
Áður en Einar hóf störf hjá Íslenskum verðbréfum starfaði hann sem aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra og þar áður sem fulltrúi hjá sýslumanninum á Akureyri. Á árunum 2000-2002 starfaði hann á verðbréfasviði Búnaðarbanka Íslands hf. og hjá Fjármálaeftirlitinu vann hann samhliða námi 2004-2005.












